áhrif af hækkunum á sköttum og gjöldum.
Virðulegi forseti. Það er eðlilegt að sum gjöld ríkis og sveitarfélaga taki breytingum á milli ára. Ríkissjóður og hið opinbera þurfa reglulega að uppfæra tekjuforsendur gjalda og verðlag breytist milli ára. Eins og fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga þurfa hækkanir að vera samræmdar og hóflegar. Þær mega ekki leggjast hver ofan á aðra án þess að einhver hafi heildarmyndina. Í fjárlagafrumvarpinu hækka krónutölugjöld og kílómetragjald. Raunhækkun skattleysismarka fellur niður. Barnabætur standa óbreyttar þriðja árið í röð. Hvert atriði virðist kannski lítið eitt og sér en samanlögð áhrif þeirra eru mikil. Boðaðar breytingar ríkisstjórnarinnar eru á margan hátt jákvæðar en það er ekkert fast í hendi. Við í Framsókn höfum metið áhrif frumvarpsins á einstakar fjölskyldur. Við getum ekki betur séð en að áhrifin séu veruleg. Fyrir hjón með tvö börn og hefðbundið húsnæðislán sýnist okkur að þau geti numið um 200.000–300.000 kr. á ári að meðtöldum áhrifum á húsnæðislán. Hlutfallslega leggst byrðin þungt og jafnvel þyngst á tekjulægri barnafjölskyldur. Þetta snertir málaflokk hæstv. félags- og húsnæðismálaráðherra. Ef hækkanir gjalda taka stóran hluta kjarabóta til baka er það áhyggjuefni. Því spyr ég hæstv. ráðherra: Hefur ráðherra eða ráðuneyti hans lagt heildstætt mat á það hver heildaráhrif hækkana gjalda og skatta í fjárlagafrumvarpinu eru á fjárhag einstakra fjölskyldna í landinu? Ef svo er, hver eru þá áhrifin að mati ráðherra?