stéttarfélög og vinnudeilur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Inga Jóhannssyni fyrir hans fyrri spurningu. Svo ég svari spurningunni þá var horft til Noregs. Hér er verið að samræma líka á milli opinbera og almenna markaðarins en það var sérstaklega horft til Noregs. Sá sem hér stendur hefur nú þó nokkra reynslu af því að vera í Karphúsinu svokallaða og eytt þar mörgum stundum og mörgum nóttum. Nú horfi ég hérna á hv. þm. Kristján Þórð Snæbjarnarson sem hefur gert það líka. En ég hef bara séð það og við höfum séð það í gegnum tíðina, sem svona kristallaðist best í því dæmi sem ég tók í ræðu fram í ræðu minni, að þegar ríkissáttasemjari er að leggja fram miðlunartillögu, hefur lögbundinn rétt til að leggja fram miðlunartillögu, þá er honum neitað af stéttarfélaginu um kjörskrá. Þetta er líka varðandi það að fresta vinnustöðvun eins og ég nefndi hérna áðan og horfa til Norðurlandanna þar sem fresturinn er frá sjö dögum upp í 21 dag til að fresta vinnustöðvun. Allt er þetta gert til þess að styrkja í rauninni stöðu ríkissáttasemjara, valdheimildir hans til að ná fram samningum. Ég held að það sé líka mikilvægt, eins og við höfum séð undanfarin ár, að þegar almenni vinnumarkaðurinn hefur samið um ákveðið — stóru samningarnir, ef við getum kallað það svo — þá miði aðrir samningar við gildandi og ráðandi kjarasamninga sem fyrir eru.