158. löggjafarþing — 15. fundur,  8. okt. 2026.

stéttarfélög og vinnudeilur.

154. mál
[15:09]
Horfa

Flm. (Jens Garðar Helgason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég veit ekki alveg hvar ég á að byrja. Að bera þetta saman við leigubremsuna; ég er ekki að tala hér um, eins og hv. þm. Kristján Þórður Snæbjarnarson og hæstv. ríkisstjórn eru að leggja til, að hér verði einhver handstýring á markaðnum. Ég verð eiginlega fyrir smá vonbrigðum að hlusta hér á gamlan verkalýðsleiðtoga koma upp og tala með þeim hætti að hann vilji ekki í rauninni styrkja stöðu ríkissáttasemjara til þess að geta lagt fram lögbundna miðlunartillögu.

Er hv. þingmaður í rauninni að segja að hann vilji verja rétt verkalýðsleiðtoganna til þess að hefta að hans félagsmenn geti kosið um miðlunartillögu sem er lögbundin hjá ríkissáttasemjara? Það má skilja á orðum hv. þingmanns að hann vilji í rauninni ekki gefa sínum félagsmönnum, eða einhverjum félagsmönnum — ef hann væri verkalýðsleiðtogi enn þá vilji hann í rauninni geta stoppað ríkissáttasemjara af sem getur lagt fram miðlunartillögu með lögbundnum hætti, en einstaka verkalýðsleiðtogi getur sagt: Nei, þú færð ekki kjörskrána af því að ég vil ekki að mínir félagsmenn fái að greiða atkvæði. Ég hélt að þetta snerist einmitt um að gefa félagsmönnunum færi á að greiða atkvæði. Þetta snýr líka að Samtökum atvinnulífsins, að Samtök atvinnulífsins þurfa líka að leggja fram sína félagaskrá. Það sama á við báða samningsaðila, þannig að hér er ekki um einhver boð og bönn að ræða. Við erum aðallega að tala um það að gefa ríkissáttasemjara tækifæri til að nýta þó það tæki sem hann hefur, sem er miðlunartillagan.