158. löggjafarþing — 15. fundur,  8. okt. 2026.

stéttarfélög og vinnudeilur.

154. mál
[15:12]
Horfa

Flm. (Jens Garðar Helgason) (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Það er kannski ágætt að benda hv. þingmanni á að það er Alþingi Íslendinga sem setur lög um vinnudeilur og stéttarfélög. Sú lagasetning fer ekki fram í Borgartúninu. (Gripið fram í.) Hún fer fram hér og það er okkar hlutverk. Hv. þingmaður í rauninni fór einhvern veginn gegn sér. Hv. þingmaður hefur framkvæmt miðlunartillögu eins og hann benti á. Það var ekkert mál í tilfelli hv. þingmanns þegar hann fór fyrir verkalýðsfélagi en það getur hins vegar verið vandamál ef hv. þingmaður, þegar hann var formaður í verkalýðsfélagi, hefði bara sagt nei og dómarnir staðfestu að það væri hægt að segja nei. Og af hverju ætlaði ríkissáttasemjari að framkvæma þetta sjálfur? Af því að verkalýðsfélagið neitaði að framkvæma. Þannig að ég skil í rauninni ekki alveg vegferð hv. þingmanns og af hverju við erum ekki að styrkja hér heimildir ríkissáttasemjara til þess að framkvæma og láta framkvæma atkvæðagreiðslu um miðlunartillögu.