stéttarfélög og vinnudeilur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þm. Sigríði Á. Andersen fyrir síðari spurningu. Ég held að það sé ágætt að við skýrum þetta aðeins. Ef miðlunartillaga er lögð fram þá ber verkalýðsfélagi að framkvæma kosningu um þá miðlunartillögu eins og hv. þm. Kristján Þórður Snæbjarnarson lýsti að hann hefði gert. En verkalýðsfélag getur bara neitað því, það getur neitað því að fara í að greiða atkvæði um miðlunartillöguna. Um það snýst málið. Ef ríkissáttasemjari ætlar að framkvæma atkvæðagreiðsluna þá getur viðkomandi verkalýðsfélag neitað að afhenda kjörskrána. Ég held að ef við horfum bara á hin praktísku mál í kringum þetta þá er bara verið að skerpa á þessu og horfa til hinna Norðurlandanna. Ég held að hv. þingmaður geti a.m.k. tekið undir það með mér að átök á vinnumarkaði hér og höfrungahlaup hafa verið þannig (Forseti hringir.) að það er himinn og haf á milli Íslands og hinna Norðurlandanna og þar hafa mikið að segja þær heimildir sem ríkissáttasemjari hefur á hinum Norðurlöndunum en ekki hér.