158. löggjafarþing — 15. fundur,  8. okt. 2026.

sveitarstjórnarlög.

59. mál
[15:50]
Horfa

Flm. (Sigríður Á. Andersen) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Jú, jú, þetta er ágæt spurning. Ég vísaði einmitt til þessa þingmáls hv. þm. Diljár Mistar Einarsdóttur þar sem hún er þó að leggja til breytingu, ekki um að þetta verði frjálst, heldur leggur hún einmitt til að það verði að lágmarki þrír (Gripið fram í.) borgarfulltrúar, þannig að það er ekki frjálst. Þá er bara spurningin hvort það eigi að vera þrír eða 15. Ég hef í sjálfu sér kannski ekki sérstaka skoðun á því eða forsendur til þess að hafa skoðun á því á þessu stigi, enda er ég ekki í borgarstjórn en ég bara heyri það, a.m.k. frá núverandi borgarstjórn, að sú borgarstjórn telur hæfilegt að hafa það 15 eins og það var í áratugi þar á undan. Það er ekki bara þessi borgarstjórn heldur hafa a.m.k. borgarfulltrúar minni hlutans síðustu áratugi talið það rétt. Þeir lögðust gegn þessari breytingu árið 2011, kölluðu strax eftir því þegar nýju sveitarstjórnarlögin voru samþykkt 2011 þar sem það var gert að skyldu að hafa að lágmarki 23. Þeir lögðust strax gegn því og höfðu uppi ákall til Alþingis um að breyta þessu. Ég brást við því árið 2015 eða 2016, að mig minnir, með því að leggja þetta frumvarp fram í fyrsta sinn. Það eru auðvitað einhver málefnaleg rök sem hægt er að færa fyrir því að það sé eitthvert lágmark. Við gætum kannski trauðla látið það fram hjá okkur fara ef borgarstjórn, eða einhver borgarstjórnarmeirihluti sem næði góðri kosningu, myndi bara ákveða að næst yrðu bara þrír borgarfulltrúar í borginni. Ég held að hagsmunir borgarbúa væru fyrir borð bornir. Ég held að við gætum öll sammælst um að þrír borgarfulltrúar næðu kannski ekki að halda uppi hagsmunagæslu fyrir borgarbúa.