158. löggjafarþing — 15. fundur,  8. okt. 2026.

sveitarstjórnarlög.

59. mál
[15:54]
Horfa

Flm. (Sigríður Á. Andersen) (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég er ekki einn af þeim stjórnmálamönnum sem veigra sér við því að tala fyrir góðum launum til stjórnmálamanna eða kjörinna fulltrúa. Það er svolítil lenska að menn slá sér á brjóst og vilja lækka laun kjörinna fulltrúa. Ég tel miklu frekar, ef menn hafa áhyggjur af kostnaði, að fækka eigi kjörnum fulltrúum en umbuna þeim. Það felast í því hættur að gera út á mikla áhugamennsku þegar kemur að stjórnmálum eða stefnumótun fyrir annað fólk. Menn sem ætla að taka sæti í einhverjum nefndum gera það kannski með hliðsjón af þeirra áhugamálum, jafnvel þeirra hagsmunum — það eru ýmsar hættur sem felast í því og eftir því sem stjórnkerfið er stærra, eins og í stórri borg eins og Reykjavík, er aðhald með slíku erfitt.

Ég er sammála hv. þingmanni um að ég tel farsælla að fækka þeim frekar en að gera þetta að einhverri sérstakri hobbímennsku, þótt ég virði það við fólk að mjög margir hafa mikinn áhuga (Forseti hringir.) á að setjast í hinar og þessar nefndir.