sveitarstjórnarlög.
Virðulegur forseti. Það má líka velta því fyrir sér hvernig kerfið er orðið, eða stjórnsýslan orðin umfangsmikil, ef kjörnir borgarfulltrúar ná ekki að sinna störfum í þeim fastanefndum sem borgin hefur ákveðið að hafa starfandi. Ég tek eftir því í fréttum að það er núna verið að fækka nefndum og það mun væntanlega eitthvað létta á álagi borgarfulltrúa. Ég held að menn þurfi líka að horfa til þess — ég óttast það og hef reyndar greint það — að því fleiri borgarfulltrúar, því meiri er hættan á að stjórnsýslan bara flæði, stækki, verði flóknari, ógagnsærri og færri hendur verði til þess að sinna henni. Það finnst mér ekki gott.
En ég árétta að þetta frumvarp lýtur (Forseti hringir.) að vali borgarstjórnar sjálfrar og að því að veita henni meira svigrúm um fjölda borgarfulltrúa.