158. löggjafarþing — 16. fundur,  13. okt. 2026.

staða RÚV og stuðningur við einkarekna fjölmiðla.

[13:59]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S):

Virðulegur forseti. Fyrst vil ég byrja á að þakka þeim ráðherrum sem þó eru mættir hér til svara. Það er gott að það séu ekki allir sem eru með þennan svokallaða forfallavírus hér í þessum sal.

En, virðulegur forseti, staða íslenskra fjölmiðla er sorgleg og ætti að vera okkur öllum áhyggjuefni. Aðeins eru sex vikur síðan önnur af tveimur sjónvarpsfréttastofum landsins þurfti að segja það gott eftir 40 ára samfellda veru á skjám landsmanna. Það gerðist aðeins 80 dögum eftir að Alþingi samþykkti frumvarp um áframhaldandi stuðning til einkarekinna fjölmiðla sem var eins konar plástur í stað þess að ráðast fyrir alvöru á vandann. Það vita allir hver fíllinn í herberginu er. Ríkisútvarpið fær um 7 milljarða í skatttekjur frá almenningi og sópar svo upp tæplega 3 milljörðum í auglýsingafé, eitthvað sem sést hvergi á hinum Norðurlöndunum. Íslenskir fjölmiðlar og fleiri til hafa margsinnis bent á að þarna liggi hundurinn grafinn.

Stóri björgunarkúturinn fyrir einkarekna fjölmiðla er svokallað tekjuþak sem hæstv. ráðherra hefur boðað í komandi frumvarpi um Ríkisútvarpið. Það felur í sér að mótframlag renni til einkarekinna fjölmiðla fari sala á viðskiptaboðum RÚV fram yfir 2,8 milljarða en stóra málið sé vissulega að 10% af allri sölu renni í pott til annarra fjölmiðla. Staðreyndin er sú að þessi tala virðist vera sýndarmennska því að tekjur RÚV af viðskiptaboðum hafa á síðustu fjórum árum ekki farið yfir 2,8 milljarða. Tæpt er því að það reyni á viðbótarframlagið. Þetta er því í raun 280 millj. kr. viðbótarframlag til einkarekinna miðla. Þarna er í raun ekki verið að hefta Ríkisútvarpið í þágu minni miðla heldur valdefla það. Vert er að benda á að RÚV Sala, sem sér um auglýsingasölu RÚV, gengur svo vel að starfsgildum þar fjölgaði á síðasta ári og er launakostnaður deildarinnar 240 milljónir, allt þetta á meðan aðrir hjá ríkinu skera niður og starfsmenn einkarekinna fjölmiðla fá uppsagnarbréf í hrönnum.

Ég vil því spyrja ráðherra: Fyrst ráðherra ætlar ekki að taka RÚV af auglýsingamarkaði, væri ekki betra að setja alvöruhöft (Forseti hringir.) á auglýsingasölu RÚV en ekki slíkar skreytingar eins og sjá má í þessu frumvarpi? Verða þessar 250–280 milljónir sem myndast til viðbótar við 850 millj. kr. stuðning á næsta ári eða verður þetta dregið frá honum? (Forseti hringir.) Telur ráðherra og ráðuneytið þetta virkilega geta orðið til þess að við fáum annan stóran fjölmiðil aftur og kannski aðra sjónvarpsfréttastöð?