staða RÚV og stuðningur við einkarekna fjölmiðla.
Virðulegur forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra svörin og vil bara nefna það og leggja inn í þessa orðræðu okkar að í maí 2023 lagði sú sem hér stendur, og reyndar meiri hluti allsherjar- og menntamálanefndar, það einmitt til að auglýsingadeild RÚV yrði lögð niður. Það þýðir ekki að RÚV yrði tekið af auglýsingamarkaði heldur að auglýsingadeildin yrði lögð niður, þ.e. þessi ágenga sala RÚV á auglýsingum myndi falla niður. Það eru reyndar margir sem hafa lagt til að RÚV verði bara tekið alfarið af auglýsingamarkaði.
Í síðari fyrirspurn langar mig að velta vöngum yfir undirbúningi og samningu nýs fjölmiðlafrumvarps hæstv. ráðherra sem ætlar að taka á þessum málum eins og hæstv. ráðherra kom inn á. Það liggur nú í samráðsgátt stjórnvalda og ég vil bara nota tækifærið og hrósa ráðherra sérstaklega fyrir að nota samráðsgáttina því það eru margir ráðherrar í þessari ríkisstjórn sem virðast ekki nýta hana eins og gera á.
Í nýlegri umsögn Sýnar hf. sem hæstv. ráðherra kom inn á er einmitt bent á ýmsar forsendur frumvarpsins og þær byggja á skýrslu Sambands evrópskra sjónvarpsstöðva. Sýn óskaði eftir því við ráðuneyti hæstv. ráðherra að fá afrit af skýrslunni en fékk þau svör að ráðuneytið hefði skýrsluna ekki undir höndum heldur væri hún aðeins til í fórum RÚV. Þetta er vissulega ekki í fyrsta sinn sem RÚV neitar að afhenda gögn og upplýsingar í sínum fórum. Þykir ráðherra það ásættanlegt að RÚV mati ráðuneyti á upplýsingum og tölum við vinnu sem miðar að því marki að laga augljósa skekkju á markaðnum? Vekur slíkt ekki upp spurningar (Forseti hringir.) um að RÚV sé með þessu að verja stöðu sína og þar af leiðandi hafa alvarleg áhrif á samkeppnina? Væri ekki eðlilegra að ráðuneytið hefði þessar upplýsingar undir höndum?