Notkun tóbaks og nikótínvara meðal barna og ungmenna.
Hæstv. forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur fyrir að vekja máls á þessu mikilvæga máli. Ísland náði, sem kunnugt er, einstökum árangri í að draga úr reykingum en nú eru nikótínpúðar algengasta neysluform nikótíns hér á landi. Dagleg notkun nikótínpúða meðal karla á aldrinum 18–34 ára hækkaði úr 24% í 32% á árunum 2020–2023 og er þetta hæsta hlutfall á Norðurlöndum. Haustið 2025 höfðu rúmlega 20% nemenda í framhaldsskóla notað púða síðasta mánuðinn. Það hlutfall hefur aðeins lækkað og notkun rafrettna hefur sömuleiðis lækkað úr 48% í 38% nú, þ.e. þeirra sem hafa notað rafrettur. Í 10. bekk nota 7% nemenda nikótínpúða og hefur heldur dregið úr. Hins vegar sýna niðurstöður úr Íslensku æskulýðsrannsókninni að reykingar meðal 10. bekkinga tvöfölduðust á tveimur árum, úr 2,3% í 4,6%.
Að mínu mati eru einkum þrjár áskoranir til staðar. Fyrst er það varan sjálf. Nikótín er eitt mest ávanabindandi efni sem þekkist og púðarnir innihalda oftar en ekki mikið magn nikótíns. Önnur áskorun snýr að markaðssetningu. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur bent á að þessar vörur séu hannaðar til að valda fíkn og þær séu seldar með sælgætisbragði í gegnum áhrifavalda og jafnvel í styrkleika sem ætlaður sé byrjendum, þ.e. þeim sem ekki hafa reykt áður. Þriðja áskorunin tekur til löggjafar en ég tel að löggjöf og regluverk hafi ekki fylgt markaðinum og fyrir vikið hafa þeir sem hafa hag af sölu varanna stýrt þróuninni. Þetta er mikilvægt vegna þess að nikótín er skaðlegt og sérstaklega skaðlegt ungu fólki. Nikótín er örvandi efni sem getur haft neikvæð áhrif á heilaþroska ungs fólks. Það truflar svefn og einbeitingu, veikir hvatastjórnun og ýtir undir kvíða. Að auki þarf að hafa í huga að langflest ungmenni sem nota nikótínpúða í dag hafa aldrei reykt. Í tilfelli þessa hóps er því ekki um skaðaminnkun að ræða. Þetta er ný fíkn og um áhrif langtímanotkunar þessara nýju vara höfum við ekki nægar upplýsingar. Þeir sem tala gegn skýrari leikreglum um sölu á nikótínvörum segja málið snúast um frelsi en fíkn er ekki frelsi. Barn eða ungmenni sem ánetjast nikótíni velur það ekki sjálft og það er því lítið frelsi í slíku fyrirkomulagi.
Í heilbrigðisstefnu til ársins 2030 kemur fram að gera megi betur í nikótínvörnum, sérstaklega meðal barna. Fyrirhugað frumvarp felur í sér að ein lög eigi við um tóbaks og nikótínvörur. Þar verður heimild til að takmarka bragðefni sem höfða til barna og heimild til að setja hámark á nikótínstyrk, en styrkur í púðum hérlendis er meiri en í nágrannalöndunum. Þannig yrði fyrirkomulagið hér á landi eins og í Danmörku og Finnlandi. Þá yrði bannað að höfða til barna með umbúðum og söluaðilum skylt að biðja um skilríki og heimilt að krefjast rafrænnar aldurssannprófunar. Frumvarpið færir leyfi og eftirlit með öllum tóbaksvörum á eina hendi hjá ÁTVR sem svo getur framselt smásölueftirlit til Umhverfis- og orkustofnunar, Matvælastofnunar eða faggiltra skoðunarstofa. Neytendastofa fer með auglýsingabannið.
Frú forseti. Það er mikilvægt að hafa í huga að fyrirhugað frumvarp um nikótín- og tóbaksvarnir bannar ekki fullorðnum að nota nikótín. Það er ekki markmiðið. Markmiðið er að tryggja að til staðar sé regluverk sem varnar því að börn og ungmenni ánetjist nikótíni með tilheyrandi skaðsemi fyrir þau og samfélag okkar. Við getum ekki haldið áfram að bæta við meðferðarúrræðum vegna kvíða og andlegrar vanlíðunar barna. Við verðum að huga að rótum vandans. Börn eiga alltaf að njóta vafans.