Notkun tóbaks og nikótínvara meðal barna og ungmenna.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Kolbrúnu Áslaugar Baldursdóttur og öðrum þingmönnum fyrir afar góða umræðu hér í salnum í dag. Í þessu stutta innleggi er auðvitað ekki hægt að bregðast við öllu því sem fram kom en þetta er sannarlega góður upptaktur að umræðu þegar frumvarpið kemur hér fram. Það er augljóst að markmið okkar allra er það sama: að verja börn. Okkur greinir lítillega á um leiðirnar. Hv. þm. Snorri Másson sagði: Best er að prófa ekki þessi efni og það er auðvitað alveg rétt. En börn og ungmenni eru nú einu sinni þannig að þau eru með óþroskaðan framheila og taka ekki alltaf ákvarðanir sem eru þeim fyrir bestu og öll höfum við án efa gert heimskulega hluti þegar við vorum í þeirra sporum. Þarna skiptir auðvitað markaðssetning gríðarlega miklu máli. Markaðssetningu er beinlínis beint að börnum og ungmennum. Það eru bleikar dósir með glimmeri fyrir stelpurnar og það eru þessi bragðefni sem höfða til barna, jarðarberjabragð og sælgætisbragð o.s.frv. Það er þarna sem við viljum stíga inn.
Íslenska forvarnalíkanið hvíldi á tveimur stoðum. Annars vegar að við settum skýr lög og reglur sem takmörkuðu notkun á tóbaki og hins vegar auðvelduðum við börnum að taka skynsamlegar ákvarðanir og pössuðum að þau hefðu gott aðgengi að t.d. öflugu frístunda- og íþróttastarfi. Ríkisstjórnin hyggst beita sér í þessum efnum, m.a. með því að móta ungmennastefnu og með þjóðarátaki er lýtur að heilsu og velferð barna og ungmenna. Tilgangurinn er að vernda börnin okkar.