158. löggjafarþing — 16. fundur,  13. okt. 2026.

almannatryggingar.

205. mál
[16:39]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Inga Sæland) (Flf) (andsvar):

Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið. Þessi eingreiðsla er núna að fara til 38.200 einstaklinga og hv. þingmaður er hér að vísa í tæplega 100 einstaklinga sem eru eignafólk. Hér er aðallega verið að miða við framfærslu. Hvað hefur viðkomandi á milli handanna til þess að geta keypt sér í matinn og til þess að geta lifað frá degi til dags? Það er ekki verið að miða við neitt annað og auðvitað er líka tekið tillit til fjármagnstekna og annars slíks ef hann er tekjuhár eða eitthvað slíkt. Það liggur alveg fyrir að þetta er algjör jaðar sem hv. þingmaður er að draga hér fram en það liggur líka fyrir að af þessum 38.200 einstaklingum sem munu njóta þessarar greiðslu — auðvitað að mismunandi leyti, eins og ég áður sagði, þetta er tekjutengt — eru ekkert allir sem fá ríflega 73.000 krónur um jólin. Það liggur algerlega fyrir.

En ég hef engar áhyggjur af þessum einstaklingum sem eru undir 100 og eru samt sem áður það tekjulágir að þeir munu fá einhverja eingreiðslu. Ég veit ekki hvort það verða 1.000 krónur eða 2.000 krónur, hv. þingmaður gæti þá kannski sagt mér frá því. En hins vegar er enginn sem fær jólaeingreiðslu sem hefur nægt fé handa á milli.