almannatryggingar.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir andsvarið og þakka honum fyrir að vera einn af tveimur þingmönnum Miðflokksins sem greiddu atkvæði með þessu frumvarpi þegar það var lagt fram árið 2025. Í þau sex ár sem þessi jólaeingreiðsla hefur átt sér stað hefur aldrei verið fyrirséð hversu lengi hún muni vara nema núna er það orðið skilyrt að henni verði haldið áfram þar til við erum búin að ná því markmiði að einstaklingur fái ekki minna greitt en 450.000 kr. Það hefur í rauninni verið algjörlega farið eftir því í ríkisstjórninni á undan og þessari hér að þetta hefur verið sett inn í fjáraukalög. Það í rauninni kemur fjárlögunum ekkert við sem er að koma fyrir árið 2027. Það er búið að gera ráð fyrir þessu fjármagni bara strax, hv. þingmaður, þannig að við erum ekki að fara að höggva á það. Við erum ekki að fara að höggva á hallalausu fjárlögin, við erum ekki að fara að koma með einhverja ófyrirséða upphæð. Það er búið að gera ráð fyrir þessu fjármagni allan tímann.