158. löggjafarþing — 16. fundur, 13. okt. 2026.
almannatryggingar.
205. mál
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir síðara andsvar. Ég ítreka það sem ég sagði: Hér hefur verið gert ráð fyrir þessu fjármagni allan tímann. Það liggur algerlega fyrir. Jú, það er alveg rétt sem hv. þingmaður bendir á, það mun koma inn í bandormi. Ég get alveg heitið því að þessi greiðsla mun fara fram í desember 2026 og það verða gleðileg jól fyrir allmarga og ég vona að hv. þingmaður greiði því glaður sitt brautargengi eins og hann gerði í fyrra.