Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Í tilefni af því að Arctic Circle, Hringborð norðurslóða, fór fram í síðustu viku þá langar mig að draga enn og aftur athygli okkar að þessu mikilvæga svæði. Norðurslóðir eru að mínu mati eitt af mikilvægustu svæðum heims, m.a. þegar kemur að umhverfismálum, öryggismálum og alþjóðasamvinnu. Hagsmunir Íslands samkvæmt þeirri stefnu sem Alþingi hefur samþykkt um málefni norðurslóða eru skýrir. Það er að tryggja frið, stöðugleika og sjálfbæra þróun á svæðinu og að við berum virðingu fyrir alþjóðalögum og réttindum þeirra sem þar búa. Á norðurslóðum sjást áhrif loftslagsbreytinga betur en víðast annars staðar. Bráðnun íss, breytingar á lífríki og aukin umsvif manna kalla á öflugt alþjóðlegt samstarf. Í því samhengi er rétt að vekja athygli á að Ísland leggur mikla áherslu á mikilvægi vísindarannsókna á svæðinu, náttúruvernd og ábyrga nýtingu auðlinda en vernd umhverfisins er ekki aðeins loftslagsmál heldur einnig grundvallaratriði í langtímaöryggi svæðisins. Áhersla á öryggis- og varnarmál á svæðinu hefur aukist. Aukin spenna í alþjóðamálum og hernaðarlegir hagsmunir stórvelda hafa m.a. aukið umræðu um að efla þurfi viðbúnað, eftirlit, leit og björgun og vernd mikilvægra innviða á norðurslóðum. Ísland byggir öryggi sitt á alþjóðasamstarfi, m.a. innan NATO, og við leggjum áherslu á að norðurslóðir verði áfram svæði friðar, samtals og samvinnu. Arctic Circle-ráðstefnan, Hringborð norðurslóða, í Hörpu í síðustu viku undirstrikaði einmitt þessi tengsl. Þar var fjallað um loftslagsvána, vaxandi alþjóðlega spennu og mikilvægi þess að rödd frumbyggja heyrist í ákvarðanatöku um framtíð svæðisins. Þekking þeirra, menning og réttindi verða að vera órjúfanlegur hluti af allri stefnumótun.
Virðulegi forseti. Eins og ég hef áður nefnt: Framtíð norðurslóða verður ekki tryggð með öryggi einu saman, heldur með samvinnu, trausti og sameiginlegri ábyrgð.