erfðafjárskattur og tekjuskattur.
Virðulegur forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um afnám erfðafjárskatts. Þetta frumvarp snýst í grunninn um einfalda en mikilvæga spurningu: Á ríkissjóður tilkall til hlutdeildar í ævistarfi fólks þegar það fellur frá, ævistarfs sem þegar hafa verið greiddir fullir skattar af? Á ríkið að mæta syrgjandi fjölskyldum á dánarbeði með útreiknaða skattkröfu í hendi? Svar mitt og okkar sem leggjum fram þetta frumvarp er nei. Þetta snýst um grundvallarafstöðu.
Við skulum tala hreint út um hvað erfðafjárskattur er. Hann er ekki nýr skattur á ný verðmæti. Hann er endurtekin skattlagning á fjármuni sem þegar hafa verið skattlagðir í bak og fyrir. Hann er tvísköttun, hrein og tær. Sá sem safnar eignum á lífsleiðinni, hvort sem það er með því að greiða niður íbúðina sína, leggja fyrir í sparnað eða byggja upp fyrirtæki, hefur þegar greitt sitt til samfélagsins. Hann greiddi tekjuskatt þegar hann vann fyrir launum sínum. Hann greiddi virðisaukaskatt og vörugjöld þegar hann fjárfesti. Hann greiddi fasteignaskatta á hverju einasta ári til síns sveitarfélags og hann greiddi fjármagnstekjuskatt af þeim hagnaði sem eignirnar kunnu að hafa gefið af sér. Að mæta svo erfingjum við andlát þessa fólks og krefjast þess að ríkið fái enn eina sneiðina af sömu kökunni er í mínum huga siðferðislega rangt. Þetta er ríkisvæðing á ævistarfi fólks. Af hverju þarf ríkið að skattleggja tvisvar sömu tekjurnar, fyrst þegar þeirra er aflað og svo við andlát? Að mínu mati er hér fyrst og fremst um óréttláta tvísköttun að ræða og er afnám erfðafjárskatts því mikið réttlætismál. Það snertir grundvallarréttindi borgaranna, stjórnarskrárvarinn eignarrétt fólks, stöðu og framtíð fjölskyldufyrirtækja og síðast en ekki síst viðhorf okkar til skatta.
Andstæðingar þess að erfðafjárskattur sé afnuminn halda því gjarnan fram að þetta sé skattur sem bitni aðeins á hinum ofurríku, eins og þeir eru kallaðir. Það er mikill misskilningur. Erfðafjárskatturinn leggst af miklum þunga á lítil og meðalstór fjölskyldufyrirtæki, t.d. við dæmigerð kynslóðaskipti innan fyrirtækja. Foreldrar hafa byggt upp blómlegt fyrirtæki, hvort sem það er framleiðslufyrirtæki, verslun, bújörð í sveit eða hvað það er. Þegar þau svo falla frá eru verðmætin ekki til í reiðufé á bankareikningi. Verðmætin eru bundin í tækjum, fasteignum, vélum, lager o.s.frv. Hvað gerist þegar ríki krefst 10% erfðafjárskatts af heildarvirði slíks rekstrar? Erfingjarnir eiga oft ekki þetta reiðufé. Niðurstaðan verður sú að fjölskyldur neyðast til að taka dýr lán, skuldsetja reksturinn eða hreinlega selja lífsviðurværi sitt úr fjölskyldunni eingöngu til að þóknast ríkissjóði. Þetta dregur máttinn úr íslensku atvinnulífi, skaðar nýliðun og grefur undan innlendu eignarhaldi. Þetta dregur úr vexti fyrirtækja og það við kynslóðaskipti sem geta gerst snögglega. Auk þess grefur skatturinn undan hvatanum til að spara. Við eigum að hvetja fólk til að sýna ráðdeild, safna eignum og byggja upp fjárhagslegt sjálfstæði fyrir sig og sína afkomendur. Erfðafjárskatturinn virkar sem refsing fyrir ráðdeildarsemi. Með honum er sagt við borgarana: Eyðið frekar öllu á lífsleiðinni því annars tekur ríkið það bara af ykkur eftir ykkar dag. Þetta er öfugsnúinn hvati.
Skoðum aðeins framkvæmdina. Beinn erfðafjárskattur er í eðli sínu óskilvirkur skattur. Hann skilar um 5 milljörðum kr. á ári í ríkissjóð sem er lítið brot af heildartekjum ríkisins, tæplega hálft prósent. Þegar fyrirframgreiddur arfur hefur verið skattlagður líka eru erfðafjárskatttekjur ríkisins samtals um 13 milljarðar á ári. En hvað kostar að innheimta þennan skatt? Stjórnsýslukostnaðurinn er mjög hár og embætti sýslumanns og Skattsins þurfa að eyða miklum tíma í flókið og oft og tíðum erfitt virðismat á óskráðum hlutabréfum, fasteignum og persónulegum munum. Þetta getur leitt til deilna um lögfræðikostnað og dýrra dómsmála milli borgaranna og ríkisins á viðkvæmum tímum í lífi fólks. Það fylgja því augljós hagræðingartækifæri að losa þessi embætti undan svo umfangsmikilli stjórnsýslu og myndi minnka ágreining um matsverð eigna.
Auk þess má líta til þess að efnaðasta fólkið, sem andstæðingar afnáms erfðafjárskatts benda sífellt á, getur átt auðvelt með að komast hjá þessum skatti, sé vilji fyrir hendi. Með flókinni skatt- og eignaskipulagningu, eignarhaldsfélögum eða fyrirframgreiddum arfi yfir áratugi tekst stundum að lágmarka þessa greiðslu. Hverjir sitja þá eftir og greiða skattinn að fullu? Það er hin almenna millistétt. Það er fólkið sem naut ekki aðstoðar lögfræðinga við að koma eignum sínum betur fyrir en átti kannski eina íbúð sem hafði hækkað í verði í áranna rás. Þessi skattur bitnar því verst og mest á venjulegum fjölskyldum, venjulegu fólki.
Mörg lönd hafa undanfarna einn og tvo áratugi afnumið erfðafjárskatt og mörg lönd í kringum okkur hafa aldrei sett á slíkan skatt. Við berum okkur oft saman við Norðurlöndin í hinum ýmsum málum. Og hvað gerðu t.d. tvö þeirra við erfðafjárskattinn? Í Svíþjóð var skatturinn afnuminn árið 2005 og það var ríkisstjórn jafnaðarmanna. Sænskir vinstri menn sáu og viðurkenndu að skatturinn var að valda tjóni. Hann var að flæma sænsk fjölskyldufyrirtæki og fjármagn úr landi. Stofnandi IKEA, það er frægt dæmi um hann, flutti hreinlega lögheimili sitt úr landi vegna þessa skatts og aðrir stórir atvinnurekendur. Svíar sáu að skaðinn fyrir samfélagið var mun meiri en sá ávinningur sem ríkissjóður hafði af innheimtunni. Noregur fylgdi í kjölfarið árið 2014 og afnam sinn erfðafjárskatt. Þar sýndu greiningar það sama. Skatturinn lagðist af meiri þunga á millistéttina og fjölskyldufyrirtækin en hina svokölluðu ofurríku, auk þess sem stjórnsýslukostnaðurinn át upp stóran hluta af tekjunum. Nú heyrum við frá landsþingi breska Íhaldsflokksins að formaður flokksins hefur boðað að afnám erfðafjárskatts verði ein af tillögunum fyrir næstu þingkosningar og hefur það valdið mikilli umræðu en það eru mjög stórtæk áform af þeirra hálfu um að afnema þennan skatt.
Virðulegur forseti. Þetta frumvarp snýst um virðingu fyrir einkalífi fólks og ævistarfi og fyrir fjölskyldunni sem grunnstoð samfélagsins. Ríkið á að láta það duga að skattleggja lifandi fólk og verðmætasköpun þess meðan það er á lífi og í störfum en láta dánarbú þess í friði. Sýnum íslenskum fjölskyldum þá virðingu að leyfa þeim að halda ávöxtum erfiðis síns innan fjölskyldunnar. Ég skora á hv. þingmenn úr öllum flokkum að líta til reynslu nágrannaþjóða okkar, leggja til hliðar gamlar hugmyndir um þessa hluti og samþykkja þetta mikilvæga skref til einföldunar, frelsis og réttlætis.
Ég legg til, virðulegur forseti, að frumvarpinu verði að lokinni þessari umræðu vísað til 2. umræðu og hv. efnahags- og viðskiptanefndar.