erfðafjárskattur og tekjuskattur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir gott andsvar. Andlát ber oft óvænt að. Ég lít ekki á það sem heppni þegar foreldrar manns deyja. Það er bara þannig. Það er ekki heppni þegar fólk deyr. Það er bara sjálfsagt að hafi foreldri átt eina litla íbúð sem það hefur borgað fyrir og sparað fyrir í gegnum áratugina — þarna greinir á um viðhorf og svo sannarlega greinir þarna á um algerlega grundvallarafstöðu til skatta, eins og þingmanninum rataðist rétt orð á munn. Það er nokkuð ljóst. Munur er á afstöðu stórs hluta þingmanna og svo vinstri manna sem eru sitjandi á þingi í dag.
Hvar megi finna fjármagn á móti? Það er nú góð spurning. Það hefur verið ansi djúpt á hagræðingartillögunum sem Samfylkingin eða ríkisstjórnin fór af stað með og óskaði eftir. Það mætti t.d. byrja á því, væri ég í sporum hv. þingmanns í þessum nefndum, að ráðast aðeins á báknið, skoða báknið, minnka báknið. Bara við það að aflétta ákveðnum hlunnindum sem opinberir starfsmenn hafa getur sparað tugi milljarða króna. Lítum ekki til þess að það sé ekki hægt að breyta neinu.
Þetta kemur svo sem ekki á óvart. Þetta er grundvallarafstaða til tekjuöflunar ríkisins og hvernig farið er með fjármuni okkar, fólksins í landinu sem við vinnum fyrir. Báknið hefur blásið út í langan tíma. Það þarf að fara í gegnum það með ákveðnu millibili og á ákveðnum tímabilum. Gerum það, finnum leiðir þar í gegn. Við erum ekki að fara að láta (Forseti hringir.) 13 milljarða erfðafjárskatt bitna á einhverri þjónustu eða slíku í samfélaginu.