erfðafjárskattur og tekjuskattur.
Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Skera niður þjónustu, það er alltaf fyrsta svarið hjá vinstri mönnum. Það er engin önnur leið en að blása út báknið. Ég nefndi hérna áðan að það væri mjög mikilvægt að fara í gegnum það hvernig verkefnum og starfsstöðum er fyrir komið í dag, hvernig það hefur blásið út á undanförnum árum og hvort það sé ekki tækifæri þar til að draga saman seglin. Það eru ýmsar tillögur sem hafa verið lagðar fram hér á þingi til þess að auka í rauninni svigrúm sem ég hvet hv. þingmann til að kynna sér nánar, hafi hann ekki gert það. En að grípa alltaf til þess að það komi niður á heilbrigðiskerfinu eða velferðarþjónustunni eða hvað það er ef skattar verða lækkaðir, það er aumt. En það er svo sem bara gott að fá fram í dag þessa grundvallarafstöðu til skatta og til samneyslunnar, og kökunnar sem við erum alltaf að búa til, verðmætasköpunarinnar.
Það er ástæða fyrir því að lönd í kringum okkur, eins og ég nefndi í upphaflegri ræðu minni, hafa afnumið þetta. Þau höfðu vonda reynslu af þessu þar sem fólk skipti um lögheimili og flutti úr landi til þess að sleppa við þetta og láta mjög vel af því að þetta hafi aukið umsvif og tekjur. Sem sagt fasteignir og eignir sem ekki hefur þurft að greiða skatt af, þær hafa farið í vinnu annars staðar. Þetta eru kannski ekki hæstu upphæðirnar. Ég vil koma því á framfæri að það eru auðvitað ekki hæstu upphæðirnar sem þetta kemur oftast niður á. Þetta kemur oftast niður á venjulegri fjölskyldu, (Forseti hringir.) venjulegu fjölskyldufyrirtæki sem er lítið eða meðalstórt, síst á þeim stóru, og þarna erum við algjörlega ósammála. En ég vona bara (Forseti hringir.) að þetta fái góða umfjöllun og vinnu í viðkomandi nefnd.