erfðafjárskattur og tekjuskattur.
Frú forseti. Já, ég er hrifinn af Norðmönnum enda á ég ættir mínar að rekja til Noregs. Afi minn fæddist undir bát í Falkfjorden í Lofoten þannig að ég tengi sterkt við Norðmenn. En hér leggur hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir til nýjan skatt og það kemur heldur ekkert á óvart. Skattur, skattur, skattur. Og ef ég man það rétt þá segist sessunautur minn, hv. þm. Arna Lára Jónsdóttir, ekki vera hrædd við skatta. (ArnaJ: Alls ekki. )Og ég held að hún þrái skatta. Hún nefnir hér auðlegðarskatt. Ég bara ítreka að það á ekki að skattleggja fólk sem skapar auð. Við eigum að leyfa því að halda áfram að koma með fleiri og góðar hugmyndir, búa til ný verðmæti sem ekki voru til áður. Þannig stækkar kakan. Þetta er erfitt fyrir vinstri menn að skilja en þannig stækkar kakan og þá höfum við bæði fleiri og þykkari sneiðar handa öllum. Við eigum ekki að minnka kökuna og reyna að dreifa sneiðunum nákvæmlega jafnt yfir allt og alla og vera svo bara ánægð með það af því að það fá allir sömu litlu flísina. Stækkum kökuna, leyfum þeim sem eru best til þess fallnir að skapa verðmæti að fá að gera það í friði. Ráða fólki vinnu. Þá kemur tekjuskattur og alls konar gjöld sem eru af fyrirtækjarekstri. Mynda viðskiptasambönd.
Og svo ég svari spurningunni um 14 milljarðana. Við þurfum ekki að skattleggja okkur inn í 14 milljarðana. Við getum fengið þá með því að stækka kökuna og miklu, miklu meira en 14 milljarða. Þarna kristallast hægrimennskan og vinstrimennskan. Frelsi til athafna er okkar hægri manna á meðan það að kreista súrefnið úr atvinnulífinu er vinstrimennskan. Ég bara bið fólk um að íhuga það sem er að horfa á hvorum megin það vill standa í þessu.