158. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2026.

erfðafjárskattur og tekjuskattur.

9. mál
[15:10]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Rögnu Sigurðardóttur fyrir seinna andsvar. Það er nú líklegast rétt að við erum ekki á toppnum hvað skattpíningu varðar og skattbyrði en ég sé það alveg í kortunum, miðað við þá skattstefnu sem ríkisstjórnin er með hér, að menn auka gjöld og skatta stanslaust. Og eins og hv. þingmaður fer hér yfir, að ef það er farið eins og í berjamó út til Norðurlandanna að finna hvar er skattlagt þar umfram það sem er skattlagt hér og menn bara velja það til að koma okkur á toppinn hvað skattpíningu varðar er það ekki eitthvað sem ég tel æskilegt, alls ekki, og ég held að almenningur geri það ekki. Ég held að almenningur sé búinn að fá gjörsamlega nóg af sköttum, við getum nefnt kílómetragjaldið og vörugjöldin sem hækkuðu, svo samsköttun hjóna. Svo á eftir að dynja eitthvað á núna, prósentutölur á gjöldum eru hærri hér, sem sagt umfram verðbólgumarkmið. Ég held að fólk sé búið að fá nóg af þessu. Við búum í landi sem er gríðarlega ríkt af auðlindum og við ættum að geta nýtt þær enn þá betur, gefið fólki þannig umhverfi og hvata að það sé tilbúið að taka áhættu og staðan sé ekki þannig að ef þú tekur áhættu og þér gengur vel sé krumlan komin ofan í vasann hjá þér um leið. Ég veit að hv. þingmaður væri ekki til í það sjálfur. Auðvitað vill hv. þingmaður, þó að ég sé að leggja honum orð í munn eða hugsanir í munn, greiða sinn þátt í samfélaginu eins og sá sem hér stendur þannig að samfélagið gangi vel og grunnþjónustan sé greidd vel en almennt draga miklir skattar úr hvötum til þess að skapa ný verðmæti. Þeir draga úr hvötum til að menn taki áhættu og reyni að búa til eitthvað nýtt úr engu. Það er eitthvað sem kallast verðmætasköpun sem ég held að við ættum öll að leggjast á árarnar með að auka hér á landi.