158. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2026.

erfðafjárskattur og tekjuskattur.

9. mál
[15:21]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég vil þakka hv. þm. Þorgrími Sigmundssyni fyrir sína ræðu. Varðandi OECD ætla ég bara að taka að mér, með leyfi forseta, að vitna jafnframt í OECD og skýrslur stofnunarinnar og hún telur að vel hannaðir erfðafjárskattar geti aukið tekjur og jöfnuð — þetta er tilvitnun í OECD — með minni kostnaði fyrir efnahagslega skilvirkni en ýmsar aðrar leiðir. Stofnunin telur rökin sérstaklega sterk þar sem skattlagning fjármagnstekna og auðs er annars lítil. Hún bendir jafnframt á að rannsóknir sýni almennt takmarkaðri áhrif erfðafjárskatta á sparnað en sumra annarra skatta á auðuga einstaklinga. En mér sýnist þetta eiga vel við hér á Íslandi, t.d. ef við berum saman við önnur Norðurlönd sem eru mörg hver með einmitt hærri fjármagnstekjuskatt en hér á Íslandi og jafnvel auðlegðarskatt sem er ekki almennt hér. Tökum bara sem dæmi Finnland. Mig langar að leiðrétta mig áðan því ég sagði hér í ræðustól að Finnland skattlegði hagnað af erfðum hlutabréfum. Það var rangt hjá mér, það er sem sagt í Noregi og Svíþjóð. En bara sem dæmi þá er Finnland með almenna fjármagnstekjuskattlagningu í 30% og 34% og svo er stigvaxandi erfðafjárskattur sem er með jaðarhlutfallið 7–19% fyrir nánustu ættingja og 19–33% fyrir aðra. Hér á landi er þetta 10%.

Mig langar að spyrja hv. þingmann í fyrsta lagi hvað honum finnst um þessa vitnun í OECD þar sem er einmitt talað um að þetta geti aukið jöfnuð (Forseti hringir.) og hins vegar um norræna módelið hvað varðar þessa skattlagningu. Vill hann einfaldlega sleppa þessum tekjum og að það komi ekkert á móti (Forseti hringir.) og hafa bara sömu skattstofna að öðru leyti?

(Forseti (KÁB): Forseti vill biðja hv. þingmenn um að virða ræðutímann.)