158. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2026.

erfðafjárskattur og tekjuskattur.

9. mál
[15:26]
Horfa

Ragna Sigurðardóttir (Sf) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni fyrir svarið. Mig langar að spyrja: Þekkir hv. þingmaður einhver dæmi þess að fyrirtæki hafi verið brotin upp til að greiða 10% erfðafjárskatt? Varðandi 14 milljarðana þá er þetta tala sem kemur beinlínis úr fjárlögum. Þetta voru 14 milljarðar á fjárlögum 2026. Við endurmat á tekjunum voru þetta 14,6 milljarðar, sem sagt við endurmetnar tekjur 2026 og svo er þetta 14,1 milljarður í fjárlagafrumvarpi fyrir 2027. Þetta eru því 14 milljarðar í ansi mörgum útgáfum og ég held að það þurfi ekkert að deila neitt sérstaklega um þá upphæð. En af því að það er töluvert um dómsdagsspár þá langaði mig að spyrja að þessu, hvort hv. þingmaður þekki einhver sérstök dæmi þess að fyrirtæki hafi verið brotin upp til að greiða 10% erfðafjárskatt?