158. löggjafarþing — 17. fundur,  14. okt. 2026.

markaðssetningarlög.

89. mál
[15:47]
Horfa

Sigmundur Ernir Rúnarsson (Sf):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þm. Snorra Mássyni fyrir að ljá máls á þessu máli. Sá sem hér stendur er, fyrir utan það að vera alþingismaður, rithöfundur og fjölmiðlamaður í marga áratugi og vill standa vörð um íslenskuna. Það hefur ekkert með þjóðernishroka að gera, það hefur einfaldlega með ást á móðurmálinu að gera. Sá sem hér stendur hefur, eins og hv. þm. Snorri Másson, séð þessa þróun; ágangur enskunnar hefur verið yfirgengilegur á undanliðnum árum og sér ekki lát á. Það er eðlilegt að taka til varna fyrir eitt fegursta og, eigum við að segja, stórkostlegasta tungumál sem okkur finnst talað hér í heimi og er vel að merkja þingmál; hér er töluð íslenska í þessum sal án þess að sletta og er það vel.

Þessi þróun hefur verið afskaplega áberandi á allra síðustu árum eftir því sem útlendingum hefur fjölgað hér á landi og eru skýringar á því einhverjar. En við getum ekki farið lengra í þessum efnum en aðrar þjóðir; ég nefni t.d. Frakka, Spánverja, Ítali og aðrar gamlar þjóðir á meginlandi Evrópu sem gjalda varhuga við því að skilti á búðum og þjónustustofnunum séu á ensku og auglýsingar í blöðum séu jafnvel einvörðungu á öðru tungumáli en viðurkennt er heima fyrir, í skólum og öðrum stofnunum. Ég tel að við eigum með einhverju móti að stíga niður fæti, ella gerist það augljósa, frú forseti, að allar búðir niður og upp eftir Laugaveginum heita ensku heiti, öll veitingahús í Reykjavík, á Akureyri og víðar um land heita enskum eða öðrum nöfnum en íslenskum. Það sem mun vera andlag þessarar þróunar er ósköp augljóst; ég mun ekki fara í Vesturbæjarlaugina seinni partinn heldur „swimming pool“ og ég mun jafnframt, og e.t.v. á gamalsaldri, fara að gefa út bækur mínar, sem eru orðnar allmargar, bæði ljóð og prósar og sögur, á ensku í stað íslensku. Þetta er ósköp eðlilegt andlag af þeirri þróun sem er augljós öllum sem fara um götur og torg á Íslandi.

Eigum við og getum við staðið gegn þessari þróun? Viljum við það? Er einhver ávinningur af því? Já, ég vil búa í landi þar sem íslenskunni er gert hátt undir höfði og tala þar fyrir munn margra í listageiranum, í þjónustugeiranum og ekki síst fyrir eldra fólk sem er ekki endilega með ensku og önnur erlend tungumál á hreinu og á, ég vil segja, kröfu á því að fyrsta tungumálið sem mætir því á þjónustustofnunum á borð við bókasöfn og verslanir, og við getum haldið áfram að telja, sé íslenska.

Það er svo annað: Sá sem hér stendur hefur trú á því að útlendingur sem sækir Ísland heim vilji einmitt mæta íslensku. Sá sem hér stendur vill ekki fara til Ítalíu, Frakklands eða Spánar og heyra þar einvörðungu ensku. Hann vill með öðrum orðum fara til útlanda. Hann vill fara til Ítalíu, Frakklands og Spánar en ekki til Englands nema auðvitað þegar hann fer einmitt til Lundúna og annarra borga Englands, þar er enskan sjálfsögð. En hún á ekki að vera sjálfgefin í öðrum löndum og hún á ekki að vera fyrsti kostur í öðrum löndum sem leggja metnað sinn í að leggja rækt við móðurmálið, að leggja rækt við kennslu í íslensku.

Þess vegna get ég í sjálfu sér fagnað þessari tillögu hv. þm. Snorra Mássonar en vil kannski beina spurningu til hans: Hvar finnst honum brotalamirnar helst vera að teiknast upp? Þessi enski faraldur, ef svo má segja, með fullri virðingu fyrir ensku tungumáli sem er gott og gilt, skýtur sér víða niður. Ég held að það sé lag að staldra hér við og spyrja okkur sem þjóð: Viljum við leggja rækt við íslensku? Viljum við sporna við fótum? Enskan er góð og gild en hún á ekki að gera út af við íslenskuna.