endurskoðun á tímabili viðmiðunargreiðslna fæðingar- og foreldraorlofs.
Virðulegur forseti. Já, ég ætla bara að ítreka það sem ég sagði hér í andsvörum áðan að mér líst vel á þetta mál. Það er gott og ég styð markmið þess, þ.e. að ná fram bótum á Fæðingarorlofssjóði. Þetta er auðvitað þingsályktunartillaga sem er þá að fela ráðherra þetta verkefni. Og eins og fram hefur komið hef ég lagt fram frumvarp sem mér finnst í rauninni tala inn í þessa þingsályktunartillögu þannig að velferðarnefnd gæti yfirfarið það frumvarp og afgreitt það frá sér með eða án breytinga eftir þeirri umræðu sem þar myndi þróast. En ég vil bara ítreka að þó að ég hafi skilning á þeim sjónarmiðum sem komu hér fram, að það þurfi kostnaðarmat frá ráðuneytinu, vil ég bara minna á það og minna háttvirta velferðarnefnd á að það væri bara mjög eðlilegt af hálfu nefndarinnar að óska eftir umsögn frá ráðuneytinu og óska eftir kostnaðarmati á því frumvarpi og þá, virðulegi forseti, er ég að ræða það frumvarp sem ég hef hér lagt fram. Við sem þingmenn og löggjafinn eigum ekki að vera feimin við að óska eftir slíkri vinnu af hálfu ráðuneytisins. Því að þó að það sé nú svo að langflest frumvörp komi hér í gegnum ríkisstjórnir og fari svo í gegnum ferlið hjá okkur þá erum við jú löggjafinn og við eigum líka alveg að geta afgreitt frá okkur mál og krafist þess að fá svör, sjónarmið og mat frá viðkomandi fagráðuneyti þegar svo ber undir.
En virðulegur forseti, ég kom nú eiginlega upp út af því að ég ætlaði að segja að auðvitað á að kostnaðarmeta þetta og það yrðu jú varanleg útgjöld úr Fæðingarorlofssjóði. En á sama tíma er sú staða uppi að fæðingartíðni er mun lægri í dag en verið hefur ef við horfum nokkur ár, ég tala nú ekki um áratugi, aftur í tímann. Það er ákveðið áhyggjuefni. Það hefur verið bent á það m.a. í umfjöllun um fjármálaáætlanir og í álitum frá fjármálaráði, þ.e. öldrun þjóðarinnar. Ég er ekki að segja að ein svona breyting breyti öllu þar að lútandi, alls ekki. Við áttum okkur á að lægri fæðingartíðni er eitthvað sem við erum búin að horfa upp á í, ja, alla vega Vestur-Evrópu og eflaust víðar á síðustu árum og við Íslendingar erum kannski að færast nær þeirri fæðingartíðni sem þar hefur verið núna. Við stóðum lengi upp úr með hærri fæðingartíðni hér á Íslandi heldur en víðast hvar annars staðar. En það sem við í þessum sal getum gert, þ.e. kjörnir fulltrúar, bæði hér á þingi svo og í sveitarstjórnum um landið allt, það sem við getum gert í þessu máli er að reyna að byggja barnafjölskyldum eins góð lífsskilyrði og kostur er. Þá spilar fæðingarorlofið stóra rullu og ég vil meina að þessi fæðingarorlofslöggjöf sem við horfum til þegar við lengdum fæðingarorlofið, þegar við tryggðum að báðir foreldrar hefðu rétt til töku fæðingarorlofs, hafi skipt ofboðslega miklu máli og sé líklega eitt af stærstu púslunum í okkar púsluspili varðandi jafnréttismál og þátttöku beggja kynja á vinnumarkaði. Og það er jákvætt.
Svo ég horfi nú víðar en bara hér í þessum sal þá spila auðvitað sveitarstjórnirnar í þessu landi, með rekstri leikskóla, ákvörðun gjaldskrár og niðurgreiðslu til dagforeldra, þarna líka ofboðslega stórt hlutverk. Staðan hefur því miður ekki verið nógu góð þegar kemur að leikskólamálum og aðgengi ungra barna eftir að fæðingarorlofi sleppir inn á leikskóla. Þar hefur höfuðborgin skorið sig úr hvað það varðar að það hefur verið mjög erfitt að koma börnum hér inn á leikskóla. Ég vona að það sé að breytast. En ég sé líka þegar ég ber saman tölur á börnum, sem sagt frá 12 mánaða aldri og upp í 18 mánaða aldur, að það er mjög dýrt að setja börn hér til dagforeldra í höfuðborginni og dýrara en víða í nágrannasveitarfélögunum. Það er ekki gott og við þessu held ég að þurfi að bregðast.
Þannig að, virðulegur forseti, ég vildi bara hafa nefnt þetta. Ég held að hér séum við að tala um mikilvægt mál. Við eigum að kostnaðarmeta það og átta okkur á því hvaða áhrif það hefur á greiðslur úr Fæðingarorlofssjóði. En við þurfum líka að horfa á stóru myndina, hvað það gefur okkur að það haldi nú örugglega ekki aftur af fólki í að fjölga sér og eignast börn að það séu einhverjar kerfislægar reglur sem dragi úr frjósemi hér á landi. Við megum hreinlega ekki við því.