greinargerð vegna málshöfðunar ESA.
Virðulegi forseti. Að sjálfsögðu mun ég ekki fara frá þessu máli af því að þetta er á endanum pólitík og það er alveg ljóst að Miðflokkurinn með Sigríði Á. Andersen — sem sat í starfshópi sem þessi tillaga sem við erum að ræða um hér í þinginu byggir á, bara þannig að því sé haldið til haga. En að sjálfsögðu munum við halda í fyrsta lagi uppi vörnum fyrir Ísland. Það munum við alltaf gera. En á endanum er þetta að mínu mati enn eitt svona tækifæri sem er verið að nota til að koma í veg fyrir að við stöndum vörð um skuldbindingar okkar samkvæmt EES-samningnum. Það er alveg ljóst að það er mikill munur á milli stjórnar og stjórnarandstöðu þegar að þessu kemur. Ríkisstjórn Íslands er alveg skýr í sinni afstöðu. Við ætlum að gera það sem þarf til þess að EES-samningurinn haldi gildi sínu, sé virkur, ekki síst virkur fyrir íslenskan almenning, fyrir einstaklinga, fjölskyldur og ekki síst fyrirtæki landsins.