ráðgjöf fyrir utanríkisráðherra vegna þjóðaratkvæðagreiðslu.
Frú forseti. Þetta er nefnilega sitthvor hluturinn. Ég spurði ekki hvort hæstv. ráðherra hefði sparað með því að ráða sér ekki aðstoðarmann, ég spurði hvort ríkissjóður hefði greitt fyrir flokkspólitíska vinnu, þannig að þetta er kannski eitthvað sem þarf að skoða betur.
Ég ætla að venda kvæði mínu í kross og spyrja út í yfirlýsingu hæstv. utanríkisráðherra frá því í desember 2024. Þá lofaði hún að ekki yrði hækkaður virðisaukaskattur á ferðaþjónustuna. Nú ætlar ríkisstjórnin hins vegar að hækka virðisaukaskatt á hluta ferðaþjónustunnar úr 11% í 24%, þvert á þessi gefnu loforð. Fyrirtæki hafa tekið fjárfestingarákvarðanir og jafnvel skuldbundið sig fyrir milljarða í trausti þess að ríkisstjórnin standi við orð sín.
Ég vil því spyrja hæstv. ráðherra: Hvað vill hún segja við þá fyrirtækjaeigendur sem fóru í fjárfestingar á grundvelli loforða hennar um að hækka ekki skattana? Og hvernig telur ráðherra að atvinnulífið eigi að geta treyst yfirlýsingum stjórnvalda í framtíðinni þegar forsendum fjárfestinga er breytt með þessum hætti? Því að þetta snýst ekki bara um skattahækkanir í dag (Forseti hringir.) heldur líka um traust og fjárfestingar framtíðarinnar.