svör ráðherra í óundirbúnum fyrirspurnatíma.
Virðulegur forseti. Það er gott að hv. þm. Dagur B. Eggertsson nýtir þessa stuttu millilendingu hér á Íslandi til að koma í ræðustól og taka undir með hæstv. utanríkisráðherra og vekja á því athygli að það sé vert að ræða hin og þessi mál. Sjálfur hafi hann óskað eftir sérstakri umræðu um Gaza en vegna orða hæstv. utanríkisráðherra get ég tekið undir að það væri mikilvægara að ræða samstarfið við Bandaríkin og hvet þingmenn til að óska eftir sérstakri umræðu um það og hæstv. utanríkisráðherra á hæg heimatökin í þeim efnum.
Hins vegar finnst mér óásættanlegt í rauninni að hæstv. utanríkisráðherra komi hér undir fundarstörfum forseta til þess að hnýta í þá umræðu sem á sér stað undir þessum dagskrárlið án þess að svara þeirri spurningu sem ég beindi til hennar í óundirbúnum fyrirspurnum, hvort hún teldi að ESA myndi draga málið til baka ef þessu máli yrði þjösnað í gegnum þingið. Dæmin eru nefnilega um allt annað hjá Eftirlitsstofnun EFTA. Þar er það lenska að halda málum til streitu, (Forseti hringir.) jafnvel þótt þær lagabreytingar hafi átt sér stað í landsréttinum, ef málshöfðunarfresturinn er liðinn (Forseti hringir.) eins og hér á við. Þess vegna er mikilvægt að heyra hvort hæstv. ráðherrar, og þeir svari því, (Forseti hringir.) hvort þeir trúi því að þessi málshöfðun verði dregin til baka. Og ef það er einhver fullvissa um það (Forseti hringir.) þá þurfum við að ræða það á þeim forsendum að hér sé Eftirlitsstofnun EFTA að hafa beina íhlutun í lagasetningu hér á landi.
(Forseti (BHar): Forseti vill minna hv. þingmenn á tímamörkin.)