Sjávarfallaorka.
Virðulegi forseti. Ég vil kannski byrja á því að þakka kærlega fyrir þessa umræðu og ég vil þar sérstaklega nefna Höllu Hrund Logadóttur og einnig þakka ráðherranum fyrir að vera hér til svara. Þetta er í sjálfu sér mjög áhugavert viðfangsefni að mínu mati. Sjávarfallaorkan er tækifæri, vil ég leyfa mér að segja, hérna við Ísland og við eigum að sýna þessu tækifæri alvöru. Við vitum að Ísland býr yfir öflugum sjávarfallastraumum, m.a. við Vestfirði og Austfirði og einnig í Breiðafirði sem ráðherra vék m.a. að, að gerð hafi verið skýrsla um. Þarna kunna að liggja miklir möguleikar til orkuöflunar. Það getur líka verið aukið orkuöryggi ef við fáum mögulega fjölda af minni einingum. Hér er ákveðinn styrkur í því að það er ágætisfyrirsjáanleiki. Menn geta nokkurn veginn kortlagt hvaða orku er mögulegt að sækja og því held ég að hún muni breytast lítið. Fyrirsjáanleikinn er töluverður því sjávarföllin fylgja, eins og við vitum, reglulegu mynstri.
Það er aðdáunarvert að íslenskir frumkvöðlar taki þetta til athugunar. Við vitum að það er erfitt að vera frumkvöðull alls staðar og kannski mætti jafnvel segja að það væri mögulega auðveldara að vera á Íslandi af því að hér er mikil þekking milli manna og menn eru svo nátengdir hver öðrum. Ég held að það gætu verið ákveðnir kostir fólgnir í smæð okkar. Ég held líka að við verðum að vera raunsæ í því hvað við getum gert fyrir þá fjármuni sem til eru. Auðvitað er það líka þannig (Forseti hringir.) að maður vonast til að einkaaðilar, m.a. öflug fyrirtæki, taki svona grein upp á sína arma því það er óneitanlega eftir miklu að slægjast.