málsvörn Íslands vegna málshöfðunar EFTA.
Virðulegur forseti. Það kemur á óvart ef það er þannig að það er verið að vinna hörðum höndum að málsvörn, undirbúningi eða greinargerð sem þarf að skila 30. nóvember í ljósi ummæla og loforðs hæstv. utanríkisráðherra um að það yrði haft þétt samráð við þingið um undirbúning þessarar málsvarnar. Ég ítreka spurningu mína til hæstv. forsætisráðherra: Hvenær og hvernig sér hún fyrir sér að þetta samráð fari fram? Þetta mál er búið að velkjast um lengi, það er alveg rétt, en það varð svokallaður leikbreytir, eins og börnin segja, 30. september þegar Eftirlitsstofnun EFTA ákvað að höfða mál á hendur Íslandi. Það er breytingin. Það liggur ekkert fyrir um að það mál falli niður þrátt fyrir þetta frumvarp hér nema síður sé, það er keyrt hér áfram. Þess vegna hlýt ég að spyrja líka í ljósi þess að það er ekki sjálfgefið að utanríkisráðuneytið fari með þessa málsvörn vegna þess að þetta varðar stjórnskipan Íslands og það færi kannski betur á því að hæstv. forsætisráðherra færi með fyrirsvar (Forseti hringir.) í þessu máli í þetta sinn.
En ég ítreka spurningu mína: Hvenær sér hún fyrir sér að þetta samráð fari fram? (Forseti hringir.) Einnig spyr ég líka hvort hún telji ekki að það færi betur á því að hæstv. forsætisráðherra færi með fyrirsvarið.