158. löggjafarþing — 19. fundur,  19. okt. 2026.

breyting á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti o.fl.

232. mál
[15:13]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þó að þetta mál sé að koma hér fram í annað sinn og hafi náð töluverðri umfjöllun í hv. velferðarnefnd á síðasta þingi þá fennir nú kannski svolítið yfir þá umfjöllun. Ég bið því hæstv. ráðherra að virða mér það til vorkunnar þótt ég kunni að vera að spyrja um mál sem hafa verið rædd hér við umræðu málsins í framsögunni á síðasta þingi. En mig langar að spyrja sérstaklega um 12. gr. sem mig rekur minni til að hafi verið kannski helsti ásteytingarsteinninn af hálfu gesta og þeirra sem veittu umsögn um málið á síðasta þingi, þ.e. að þetta sé of víðtæk heimild til afskipta af fyrirtækjum, þ.e. ákvæði er varðar viðbrögð við lyfjaskorti. Ég minnist umræðu t.d. um kæruheimildir sem ég velti fyrir mér hvort hæstv. ráðherra muni hvort hafi komið upp, hafi verið í þessu frumvarpi einhvern tímann og hvort það sé enn þá inni í þessu.

Mig langar að spyrja líka um 12. gr. Þar er kynnt til sögunnar nýtt fyrirbæri sem eru neyðarlyf en ég sé þess hvergi stað í frumvarpinu að það sé nákvæmlega skilgreint hvað séu neyðarlyf. Það hefur borið á því að Lyfjastofnun sé að vísa til ýmissa lyfja sem enginn myndi líta á sem einhvers konar neyðarlyf en gerð krafa um að innflytjendur haldi miklar birgðir af þessum lyfjum. Og talandi um skylduna til birgðahalds þá langar mig að spyrja hvort hér sé gerð krafa um að hafa þessi lyf á lager (Forseti hringir.) eða hvort mætti hafa þau „í hafi“ eins og kallast á heildsölumáli.