breyting á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmanni seinni spurningar. Það er sem sé verið að færa ákvarðanir um verð og greiðsluþátttöku að langmestu leyti til Sjúkratrygginga en Lyfjastofnun mun áfram vera með hámarksverð á þessum undanþágulyfjum. Það er þannig með þetta viðmið sem var boðað í vetur um að hætta að miða við lágmarksverð á Norðurlöndunum — það hefur ekki með þetta frumvarp að gera heldur mun þetta fara fram í næstu verðendurskoðun á lyfjum sem á ekki að vera fyrr en um mitt næsta ár, held ég, en mun verða flýtt, þannig að það kemur fram þar.