breyting á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir þessar athugasemdir. Það hefur auðvitað verið heilmikið unnið með frumvarpið og það var reyndar mest eftir 156. þing. Þarna er talað um atvinnufrelsi og það er nefnt í greinargerðinni að frumvarpið sé ekki talið stangast á við 75. gr. í — hvað heitir það? (Gripið fram í: Stjórnarskránni. )Akkúrat. Og eins með eignarréttinn, þar er auðvitað búið að draga til baka ákveðin atriði, t.d. að afturkalla lyf til Lyfjastofnunar og slíkt. En þetta með birgðahaldið, það er nú þegar ákveðin skylda hjá birgjum og ég sé fyrir mér líka að í tengslum við samninga sé meira kveðið á um birgðaskyldu þannig að það er hægt að gera það í gegnum samningana. En ég ítreka það sem ég sagði með áhrifamat, að áður en kveðið er á um aukna birgðaskyldu verði það skoðað með hvoru tveggja, áhrifum á birginn og á markaðinn.