breyting á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þm. Sigurði Erni Hilmarssyni fyrir þessa góðu spurningu. Það er alveg rétt að í kjölfar Covid var skipaður starfshópur sem skilaði skýrslu til þjóðaröryggisráðs og þar var fjallað um almennt birgðahald nauðsynlegra birgða til að tryggja lífsafkomu þjóðarinnar á hættutímum. Það hefur komið í ljós, af því að lyfjaskortur verður æ algengari, að hann getur svo sannarlega verið uppi þótt ekki sé um hættuástand að ræða og það væri nú ekki gott ef vantaði lífsnauðsynleg lyf. Insúlín er gott dæmi, þannig að sum lyf verða einfaldlega að vera til. Eins og ég ræddi hér áðan er verið að uppfæra þennan lista og það er auðvitað mjög mikilvægt að vanda til þess.