breyting á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti o.fl.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir seinni spurningar og verð að segja að það er til mikillar fyrirmyndar að gera grein fyrir hagsmunum þegar slíkt mál er til umfjöllunar. Hér var fyrst og fremst spurt um fyrirkomulag á ávísunum og sölu á dýralyfjum. Það var mikið rætt í nefndinni og sitt sýndist hverjum. Þess vegna er ætlunin að taka fyrirkomulagið til endurskoðunar í heild sinni í samvinnu við ráðuneyti sem fer með málefni landbúnaðar og fiskeldis og helstu hagsmunaaðila. Þarna verður fyrirkomulag meðhöndlunar dýralyfja rætt í heild sinni. Þessi tvö ráðuneyti munu hittast bráðlega og ramma inn þessa vinnu.