breyting á ýmsum lögum vegna viðbragða við lyfjaskorti o.fl.
Herra forseti. Ég þakka hv. þingmönnum fyrir góða umræðu og athugasemdir. Að mínu viti hefur aldrei verið mikilvægara að tryggja viðbrögð við lyfjaskorti og mikilvægt að þetta mál nái fram að ganga.
Ég ætlaði aðeins að nefna hér, í tilefni þess sem hv. þm. Sigurður Örn Hilmarsson nefndi, að frumvarpið væri endurflutt, að það er ekki þannig. Það stóð til að það yrði flutt óbreytt vegna þess að hv. velferðarnefnd komst mjög langt með málið og eftir samtöl milli fyrrverandi aðstoðarmanns og nefndarinnar var sem sagt ákveðið að endurflytja það en þegar nánar var skoðað þá þótti betra að ráðuneytið myndi fara höndum um frumvarpið áður. Því var breytt töluvert og það fór aftur í yfirlestur í dómsmálaráðuneytinu o.s.frv. Það bárust auðvitað fjölmargar umsagnir við vinnslu frumvarpsins og var sent minnisblað á hv. velferðarnefnd og unnið bara mjög vel úr þeim og frumvarpið hefur tekið talsverðum breytingum í gegnum þessi tvö þing. Ég tel það vera orðið gott og þar er gætt meðalhófs, t.d. þegar kemur að birgðahaldi.
Hér var rætt aðeins um Sjúkratryggingar Íslands og skýrslu Ríkisendurskoðunar og það er jú þannig að það er Alþingi sem fer með fjárveitingavaldið. Þeirri stofnun hefur að mínu mati aldrei verið gert kleift að sinna því viðamikla hlutverki sem stofnuninni er ætlað. Sú sem hér stendur, herra forseti, hefur einsett sér að styrkja Sjúkratryggingar og við byrjuðum þá vegferð í fyrra, styrktum stofnunina um nokkra tugi milljóna, mig minnir 60 milljónir, inn í stjórnsýsluna og svo aðra upphæð aftur. Aukinheldur er forstjórinn í innri skipulagsvinnu til að efla stofnunina. Það er gert ráð fyrir flutningi stöðugilda og vonandi flyst auðvitað það fólk sem hefur þekkingu á verðlagningu lyfja og greiðsluþátttöku frá Lyfjastofnun til Sjúkratrygginga.
Ég þakka sömuleiðis hv. þingkonu Kolbrúnu Baldursdóttur fyrir hennar ræðu og hún fór vel yfir helstu atriðin í frumvarpinu. Ég ætla ekkert að orðlengja það en hlutar þessa frumvarps stuðla að bættum heilbrigðisviðbúnaði þjóðarinnar og efla þar með öryggi þegnanna. Þetta er afar mikilvægt mál.
Ég þakka hv. velferðarnefnd fyrir þá vinnu sem þegar hefur farið fram og óska nefndinni alls velfarnaðar í sínum störfum.