158. löggjafarþing — 20. fundur,  20. okt. 2026.

aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.

233. mál
[14:21]
Horfa

Árni Helgason (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hæstv. ráðherra fyrir sína yfirferð um þetta mál sem er óvenjulegt fyrir margra hluta sakir. Við erum að reyna að jafna leikinn og þegar ég segi við má kannski segja Evrópa í heild sinni eftir að hafa sett upp ETS-kerfi sem hefur leitt til aukins kostnaðar við framleiðslu, leitt til þess að vörur eru frekar keyptar frá framleiðendum sem eru staddir utan EES-svæðisins sem geta boðið upp á ódýrari vöru. Hafa má mörg orð um þennan eltingarleik allan saman en þar sem ég hef stuttan tíma hér þá vildi ég kannski bara í þessu stutta andsvari fá að beina einu til ráðherrans. Það kemur auðvitað fram áhrifamat í frumvarpinu en það væri kannski fróðlegt að spyrja aðeins út í áhrifin á byggingargeirann sérstaklega. Hann er nú í þeirri stöðu sem hann er og mjög þungt er yfir vötnum þar. Þarna eru t.d. undir járn, stál og sement sem munu væntanlega fá á sig aukinn kostnað. Hvernig sér ráðherrann þetta? Hefur greining verið unnin á áhrifum bara t.d. á byggingarkostnað á íbúðum svo dæmi sé tekið?