158. löggjafarþing — 20. fundur,  20. okt. 2026.

aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.

233. mál
[14:22]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína fyrirspurn. Það er alveg rétt sem hv. þingmaður segir að þarna er að einhverju leyti verið að bregðast við þeim samkeppnishalla sem ETS-kerfið getur skapað fyrir evrópskan iðnað ef ekki er gætt að þessum innfluttu vörum frá þriðju ríkjum.

Varðandi íslenskan byggingariðnað er alveg rétt ályktað hjá hv. þingmanni að það geta orðið einhver afleidd áhrif til kostnaðarauka þar. Þar velta hlutirnir svolítið á því m.a. hversu hratt innflytjendur ganga í að breyta sínu viðskiptamynstri. Það veltur líka á því að einhverju leyti hvernig Tyrklandi gengur að búa til sambærilegt kerfi og semja við Evrópusambandið þannig að það eru ýmsir óvissuþættir. Áhrifamatið bendir ekki til þess að það verði nein veruleg áhrif en það verða líklega einhver áhrif. Ég tel að þau áhrif blikni í samanburði við þann mikla ávinning sem þetta kerfi getur skapað fyrir íslenska útflutningshagsmuni þegar kemur að iðnaði þannig að þetta er svona svolítið það hagsmunamat sem verður að gera.