158. löggjafarþing — 20. fundur,  20. okt. 2026.

aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.

233. mál
[14:25]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Frá því að ég tók við ráðuneytinu hefur þetta verið þumalputtaregla, ákveðin sía sem öll mál sem við leggjum fram, öll innleiðingarmál, fara í gegnum. Við innleiðum þau ekki með meira íþyngjandi hætti en efni standa til nema þá að það hnígi einhver málefnaleg rök að því að slík framkvæmd sé í takti við stefnu ríkisstjórnarinnar eða þjóni almannahagsmunum sem eru þá tíundaðir í greinargerðum frumvarpsins hverju sinni. Við erum að innleiða þetta mál með tilvísunaraðferð þannig að í rauninni innleiðum við ákvæðin bara beint eins og þau koma fyrir, koma af kúnni. Hins vegar eru íslensk ákvæði sem fjalla um stjórnsýsluviðurlög og fleira og þar gætum við meðalhófs í hvívetna.