aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.
Virðulegur forseti. Ég er ekki viss um að nokkur sem mun hlýða á þessa umræðu verði nokkru nær um hvað þetta fyrirbæri er, CBAM, sem nefnist á ensku Carbon Border Adjustment Mechanism, sem sagt einhver stilling vegna losunar koltvísýrings eða kolefnis eins og það kallast í íslenskum lögum. Það er hins vegar rétt að rifja aðeins upp söguna í þessum efnum. Þetta mál, þetta fyrirbæri sem hverfist um að leggja tolla eða einhverja sérstaka skatta á vörur sem framleiddar eru utan Evrópusambandsins og utan EES-svæðisins en hafa haft í för með sér einhverja losun, er til komið vegna þess að fyrir mörgum árum tók Evrópusambandið upp kerfi sem hverfist um að leggja skatta á framleiðslu á vörum innan Evrópusambandsins sem losa kolefni. Það er eins og þeir í Evrópusambandinu hafi einhvern tímann tekið ákvörðun um að una ekki nokkrum manni þess að framleiða nokkurn skapaðan hlut, allt sé vandamál, öll framleiðsla, öll þróun, öll aukin hagsæld sé einhvers konar vandamál í augum þeirra sem leggja línurnar í Evrópusambandinu. Og það var sem sagt sett upp kerfi um losunarheimildir, ETS-losunarheimildir, sem hefur auðvitað skekkt samkeppnisstöðu eða dregið úr samkeppnishæfni Evrópusambandsins svo um munar. Svo mikið að jafnvel þeir sem hafa verið í forystuhlutverki í Evrópusambandinu hafa skrifað um það skýrslur og bent á að Evrópusambandið sé að dragast aftur úr öðrum svæðum, þróuðum ríkjum í heiminum, Bandaríkjunum, löndum í Asíu, jafnvel víðar, þegar kemur að hagsæld, nýsköpun og þróun. Ég held að það sé óumdeilt að stóran hluta þessarar öfugsnúnu þróunar í Evrópusambandinu megi rekja til þessarar meinloku manna, þessa haturs manna á framleiðsluferli vara þar sem menn sjá vandamál í öllu ferlinu og þessu mikla hobbíi sem hefur orðið að mikilli atvinnugrein sem loftslagsmálin eru og hafa verið undanfarinn kannski áratug. Það er kannski aðeins að draga úr, en sem sagt þetta CBAM-ferli er hér komið til þess að reyna að rétta hlut evrópskra fyrirtækja sem standa frammi fyrir því að það er hagkvæmara að framleiða margar vörur, ef ekki flestar, utan Evrópusambandsins en í Evrópusambandinu vegna skattlagningar, vegna ósanngjarnra krafna á hendur atvinnulífi og framleiðslu í Evrópusambandinu.
Í stað þess að leysa það mál innan Evrópusambandsins hafa menn farið þá leið að stækka vandamálið og færa það út fyrir Evrópusambandið og gera fyrirtækjum í Evrópusambandinu enn erfiðara fyrir með því að sekta þau. Það má kalla þetta sektir af því að þetta eru skattar umfram aðra skatta, þá eru þetta auðvitað ekkert annað en einhvers konar sektir eða gjöld á innflutning á mikilvægum efnum sem eru innihaldsefni í aðrar framleiðsluvörur. Þetta byrjar lítið í sniðum. Þetta byrjar með því að leggja þessi gjöld á sement, steypustyrktarjárn og ál og nokkrar aðrar vörur. Þetta eru vörur sem notaðar eru til frekari framleiðslu í Evrópusambandinu. Ég hef fullan skilning á ákalli evrópskra fyrirtækja um að þessi leikur verði einhvern veginn jafnaður. Ég leggst hins vegar algerlega gegn þessu, og leyfi mér að gera það hérna í ræðustól, þótt það hafi kannski ekki áhrif í Evrópusambandinu af því að auðvitað ber Evrópusambandið sökina á þessu öllu saman, þessari öfugsnúnu þróun. Því miður hafa Íslendingum verið mislagðar hendur í að taka upp umframskyldu og svo sannarlega án allrar ábyrgðar, taka upp þessar reglur frá Evrópusambandinu eins og með viðskiptakerfið, og hafa lítið gert í því nema kannski einstaka stjórnmálamenn á erlendum vettvangi, en íslensk stjórnvöld hafa mjög lítið lagt sig fram um að tala máli skynseminnar í þessum efnum á erlendum vettvangi. Það verður að breytast. Ég tala nú ekki um þá stjórnmálamenn sem telja að Ísland hafi rödd sem heyrist á alþjóðasviðinu og í erlendu samstarfi, þá eiga menn að nýta þá rödd, a.m.k. á þeim vettvangi sem ég er að nefna.
En það sem skýtur helst skökku við í þessu máli er að þegar maður skoðar þetta sprettur óhjákvæmilega upp spurningin frá sjónarhóli okkar hérna á Íslandi hvort þetta sé ekki skattamál eða tollamál. Það er mikilvægt að svara þeirri spurningu af því að skattar og tollar eru ekki hluti af EES-samningnum. Það eru allir sammála um það. Það er enginn ágreiningur um það. Skattar og tollar eru ekki einu sinni hluti af Evrópusambandslöggjöfinni að því leyti að um þau mál gilda aðrar og strangari reglur en aðrar reglur sem Evrópusambandið setur sér sjálft og Evrópusambandsríkjunum. Þegar reglur eru settar um skattamál eða reglur eiga að hafa áhrif á skatta í aðildarríkjum Evrópusambandsins þarf að vera um það órofa samstaða meðal aðildarríkjanna. Það þarf samþykki allra Evrópusambandsríkjanna til þess að setja á sameiginlega skatta eða sameiginlega tolla sem gilda eiga í öllum aðildarríkjunum.
Þegar maður fer að skoða þetta mál kemur upp úr kafinu að það var einmitt ekki samstaða innan Evrópusambandsins um þetta CBAM-mál. Pólland til að mynda samþykkti ekki þetta mál, að því er ég best fæ séð, á þeim grunni að þetta væri skattamál og tollamál og þeir samþykktu ekki að leggja þessa tolla á þær vörur sem um ræðir við innflutning þeirra til Póllands. Og Pólverjar, eftir því sem ég best hef séð, hafa skotið þessu máli eða eiga a.m.k. einhverja aðild að máli fyrir Evrópudómstólnum þar sem ágreiningsefnið eru þessar reglugerðir sem hér er verið að innleiða, túlkun og efnislegt inntak þessara reglugerða. Þannig að frá mínum bæjardyrum séð velti ég fyrir mér hvort það sé ekki óhætt að fullyrða kannski að það sé uppi a.m.k. ágreiningur um inntak þessara reglna, hvernig hann er, og mögulega annað inntak í þessum reglugerðum.
Ég velti þessu upp á þessari stundu vegna þess einmitt að við erum líka með til þinglegrar meðferðar mál sem varðar bókun 35 sem felur það í sér, næði það fram að ganga — jafnvel þótt það næði fram að ganga er ég ekki viss um að Hæstiréttur Íslands myndi fallast á það. Menn sem tala fyrir því og brenna fyrir því máli vilja að reglugerðir sem eru innleiddar í íslenskan rétt eins og hæstv. ráðherra er að leggja til að við gerum hér með þessu frumvarpi, það eru tilteknar reglugerðir sem er verið að biðja um að verði innleiddar, muni gilda um ókomna tíð og ryðja burtu nýjum lögum sem kannski yrðu sett eftir tíu ár um svipað efni eða myndu einhvern veginn skarast á við þær reglur sem hér er verið að innleiða. Og þá skiptir máli að vita nákvæmlega þegar við erum að innleiða þessar reglur hvað í þeim felst, hvert nákvæmlega inntak þessara reglna er. Þannig hefur það verið í Evrópuréttinum að reglugerðir hafa verið settar og menn hafa framkvæmt þær í aðildarríkjunum, hver með sínum hætti en þó í samræmi við orðalag reglugerðanna. Síðan hefur það stundum komið upp mörgum árum seinna að Evrópudómstóllinn kveður upp úr um að reglugerðin þýði í rauninni eitthvað allt annað en aðildarríkin hafa haldið fram og hafa verið að vinna með. Þetta er alþekkt og það er í sjálfu sér ekkert óeðlilegt. Það kemur oft upp ágreiningur um lagatexta og mörgum árum seinna er hann kannski leystur eða hann er ekki leystur, það er kveðið upp úr um einhvern ágreining fyrir dómstólum og þá þarf löggjafinn að bregðast við því með einhverjum hætti.
Það er hins vegar kannski sjaldan sem við erum að innleiða reglugerðir frá Evrópusambandinu sem eru þá þegar komnar í ágreining í Evrópusambandinu og deilt um á hvaða sviði reglugerðin er. Er þetta tollareglugerð og skattareglugerð? Er þetta umhverfismál? Er þetta loftslagsmál? En það lítur út fyrir að um þetta sé nú þegar deilt í Evrópusambandinu af því að reglugerðin tók gildi 2023. Þess vegna hefði ég talið kannski fara betur á því að bíða aðeins með þessa innleiðingu, bíða eftir því að sjá hvernig málin þróast í Evrópusambandinu af því að mér hefur virst líka af umræðunni þar að það verði byrjað að teygja á öllum frestum sem þessar reglugerðir kveða á um. Þetta tengist ETS-losunarkerfinu og það liggur fyrir að það er verið að framlengja endurgjaldslausar losunarheimildir í ETS-kerfinu, framlengja þær ár frá ári í nokkur ár. Það þarf að svara því hvernig það samspil allt er við þessa nýju tolla sem eiga að koma á ytri landamærunum.
Ég hefði viljað heyra hæstv. ráðherra fjalla aðeins meira um stöðu álveranna hér. Hann lýsir því að þau hafi veitt jákvæða umsögn um þetta mál. Það skyldi þó ekki vera af því að þau eru enn þá með endurgjaldslausar losunarheimildir og mögulega eru álverin undanþegin CBAM vegna III. viðauka CBAM? Ég þekki það ekki en það kann að vera. Allt er þetta mjög erfitt að setja sig inn í. Einhverjir hér kinka kolli sem eru búnir að kafa meira í þetta en ég.
Ég tek það fram, og það er ágætt að hafa það hér líka skjalfest, að þessu máli var útbýtt hér á þinginu á föstudagseftirmiðdegi og það kemur hérna núna á þriðjudegi til 1. umræðu. Ég hef gert athugasemdir um að mál eins og þessi eigi að fá að liggja aðeins lengur áður en þau fara í 1. umræðu svo að umræðan hér við framsögu hæstv. ráðherra geti kannski orðið aðeins innihaldsríkari en mér tekst að láta hana verða hérna í þessari fyrstu ræðu minni um málið. En ef það er þannig að álverin eru undanþegin þessu og þau eru þess utan með losunarkvóta, er þá rétt að telja þessu máli til tekna að álverin veiti þessu jákvæða umsögn? Menn þurfa kannski að reyna að sjá aðeins lengra fram í tímann með áhrifin af máli eins og þessu. Þetta varðar ekki álverin núna. Kunna þau einhvern tímann að falla þarna undir? Hvaða önnur fyrirtæki og iðnaður falla hérna undir? Hér er nefnt í greinargerðinni, kannski málinu til stuðnings, að áhrifin séu nú bara á örfá fyrirtæki, þetta séu svona tíu innflutningsaðilar. Þetta eru að vísu stórir innflutningsaðilar en þeir eru bara tíu. Þetta hljómar mjög léttvægt og það eru kannski ekkert margir kjósendur mínir úti á götu hérna við Austurvöll sem hafa miklar áhyggjur af þessu. En hvaða tíu stóru fyrirtæki eru þetta og hvað eru þau að sýsla? Eru þau ekki að byggja hús sem eitthvert fólk hérna úti á götu þarf að kaupa? Hvaða áhrif hefur þetta á húsnæðisverð? Einhver sló á að þetta gæti haft kannski 0,2–0,5% áhrif til hækkunar á íbúðarverði. Það er kannski ekkert mikið en þetta eru áhrifin sem ég hefði viljað sjá miklu betur greind í þessu frumvarpi.