aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.
Virðulegur forseti. Maður gleymir því stundum hvað hv. þingmaður er prinsippfastur frjálshyggjumaður. Maður kann ekki alveg að eiga við það hér í þingsal. Mér finnst hv. þingmaður alltaf vísa til umhverfismála og loftslagsmála eins og þetta sé bara algjör della, eitthvert rugl sem við eigum ekkert að vera að hugsa um. Hvernig stendur á því þegar hv. þingmaður sér gögnin, sér rannsóknirnar, sér fréttirnar, sér þetta allt hrannast upp fyrir framan sig? Hvers vegna ættu þau ríki sem búa við mikla velmegun ekki að láta sig loftslagsmál varða og reyna einmitt, eins og er markmiðið með þessum kerfum, að verðleggja kolefni, halda í frjálsa samkeppni en gera það með þeim hætti sem samræmist kröfum um að draga úr losun? Sér hv. þingmaður enga fegurð í þessum losunarkvótakerfum? Þessar hugmyndir komu upphaflega frá Bandaríkjunum en voru svo innleiddar í Evrópusambandinu. Ef við förum aftur til ársins 2008 voru bæði Barack Obama og John McCain með kosningaloforð um að koma upp losunarkvótakerfi fyrir bandarískan iðnað en svo endaði það þannig að það er Evrópusambandið sem hefur verið svolítið eitt í liði með þetta.
Ég sé fegurðina í þessu þegar ég fer t.d. til Indlands, sit þar fundi með íslenskri viðskiptasendinefnd og stálframleiðendum á Indlandi sem eru að hugsa: Hvernig getum við losað kolefnið okkar til að ná forskoti á evrópskum markaði? Indversk stjórnvöld eru að setja gríðarlega fjármuni í nákvæmlega þetta, einmitt til að tryggja sér samkeppnisforskot og markaðshlutdeild á einhverjum stærsta neytendamarkaði í heimi. Svona er þessi loftslagsvegferð Evrópusambandsins að hafa afleidd áhrif, valda því að ríki eins og Tyrkland eru að koma sér upp svona kerfum og hvert ríkið á fætur öðru utan við Evrópusambandið að koma sér upp einhvers konar ETS-kerfi til að koma vörunum inn á evrópskan markað. Sér hv. þingmaður enga fegurð í þessari þróun? Sér hún bara dauða og djöful í Evrópusambandinu?