158. löggjafarþing — 20. fundur,  20. okt. 2026.

aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.

233. mál
[15:07]
Horfa

Sigríður Á. Andersen (M) (andsvar):

Forseti. Ég get alveg séð fegurðina í svona markaðsbralli þegar ég fer í jakkafötin og sest við tölvu og fæ mér vinnu við spákaupmennsku, við að kaupa og selja loftslagskvóta, eins og þeir sem hafa mokað út úr þessu kerfi. Vandinn við þessa markaði — margir hægri menn eru líka svolítið veikir fyrir þessum mörkuðum með loftslagsheimildirnar og telja þá til marks um mikla frjálshyggju eða hægrimennsku í umhverfismálum, að þarna sé leiðin fyrir hægri menn til að koma inn í umhverfisverndina. Vandinn er hins vegar sá að þessi markaður er gervimarkaður. Þetta er ekki alvörumarkaður. (Gripið fram í.) Þetta er markaður — ekki eins og allir markaðir. Þetta er markaður sem er komið á fót af stjórnvöldum um óefnisleg verðmæti, þar sem ákveðið er að eitthvað sé verðmæti. Svo vísa menn til skýrslna. Tökum dæmi um skýrslu frá IPCC, loftslagsstofnuninni. Nýjustu skýrslur sem sú stofnun byggir á er varða hamfarahlýnun eru að kynna það að spádómurinn um hamfarahlýnunina eigi ekki lengur við, að það hafi verið ofreiknað hér í fyrndinni. Nú eru menn að laga þetta og endalaust eru svona gögn að koma fram og menn eru að gera allt of mikið úr þessu.

Nei, mér finnast umhverfismál mjög spennandi og loftslagsmálin líka og það er mikil þróun í þessu en menn verða að leyfa markaðnum að þróast. Ég hef fulla trú á frjálsum markaði en enga trú á þeim gervimarkaði sem stjórnvöld hafa byggt upp og spákaupmenn hafa verið að spila með núna í tvo áratugi í eigin þágu. Menn spyrja: Hvert fer peningurinn? Og það hefur enginn einu sinni getað svarað því. Það er fullyrt hér af og til að peningarnir komi aftur inn í íslenskan ríkissjóð eða inn í ríkissjóð þessara landa. Þar er ekki hægt að finna því stað. Það er verið að deila þessum peningum út um allt land en þeir sem mest fá út úr þessu kerfi eru þeir sem sýsla á þessum markaði, spákaupmennirnir á þessum gervimarkaði.