158. löggjafarþing — 20. fundur,  20. okt. 2026.

aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.

233. mál
[15:09]
Horfa

Pawel Bartoszek (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni kærlega fyrir hennar ræðu. Líkt og hefur komið fram hérna í síðustu andsvörum er þátttaka Íslands í ETS-kerfinu nú bráðum orðin 20 ára gömul. Ísland tók það upp í EES-samninginn árið 2007 þannig að ég er kannski ekki viss um að ég og hv. þingmaður gætum alveg þvegið hendur okkar af því, við vorum saman í flokki á sínum tíma sem stóð að því þá, þó að við höfum nú flogið hvort í sína áttina úr því hreiðri síðan. Ég velti því fyrir mér hvort það sé hægt í raun og veru að aðskilja gagnrýni hv. þingmanns á CBAM-kerfið frá gagnrýni hennar á ETS-kerfið. Ég skil alveg gagnrýni á ETS-kerfið og hún hefur reyndar verið að aukast í Evrópu allri. Það er að myndast ákveðið bandalag ríkja í Evrópu, Evrópusambandinu, sem vill sjá ákveðnar tilslakanir á því kerfi. Ég myndi alveg vilja að Ísland væri með í þeirri ákvarðanatöku og tæki þátt í því. Ég lagði auðvitað þau sjónarmið á vogarskálar hér í sumar. En hér er fólk frekar að tala um að treysta á það að einhver dómur í Evrópusambandinu falli á einhvern ákveðinn hátt og þá vonandi verði eitthvað öðruvísi. En ég spyr hv. þingmann einfaldlega: Sér hún einhvern möguleika á því að við séum áfram í ETS-kerfinu en tökum ekki þátt í þessu? Þetta er bara kerfi til að koma í veg fyrir leka úr ETS-kerfinu. Ef við erum í ETS-kerfinu en tökum ekki þátt í CBAM-kerfinu þá standa auðvitað okkar framleiðendur ekki jafnfætis gagnvart framleiðendum frá þriðju ríkjum sem borga ekki þessi ETS-gjöld. Og það getur auðvitað líka gerst, sem er áhyggjuefni okkar sem viljum koma þessu á, að það komi innflutningur frá þriðju ríkjum sem geri það að verkum að íslensk framleiðsla verði beitt þvingunaraðgerðum inn í Evrópusambandið vegna þess að við höfum ekki tekið upp CBAM. Ég er bara að hugsa þetta út frá hreinum íslenskum hagsmunum, hagsmunum íslensks iðnaðar. Sér hv. þingmaður einhverja leið til að halda ETS-kerfinu en sleppa því að taka þátt í CBAM?