158. löggjafarþing — 20. fundur,  20. okt. 2026.

aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.

233. mál
[15:57]
Horfa

umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Hér er spurt um starfshópinn og samráð við atvinnulífið. Hér er um að ræða starfshóp sem er í tæknilegum útfærslum þegar kemur að innleiðingu á frumvarpinu. Ég tel að samráð við atvinnulífið fari betur fram með öðrum hætti en með því að hagsmunaaðilar eigi endilega sæti í starfshópi af þessu tagi. Það er alvanalegt, þegar verið er að innleiða eða vinna að stórum verkefnum þvert á Stjórnarráðið, að fulltrúar stofnana og ráðuneyta sitji í slíkum hópum og að samráðið fari svo fram með sérstökum fundum, ýmist með ráðuneytinu eða stofnunum og svo auðvitað í samráðsgátt. Ég tel að samráðið hafi gengið vel í þessu tilviki og það heldur auðvitað áfram núna eftir því sem innleiðingunni vindur fram.

Varðandi Alþjóðaviðskiptastofnunina er þetta sannarlega dæmi um viðskiptahindrun og þetta er hluti af viðskiptastefnu Evrópusambandsins sem er verið að innleiða hér. Þetta er framlenging af ETS-kerfinu og snýst um að byrgja brunninn og girða fyrir kolefnisleka og tryggja þannig að kerfið sé ekki til þess fallið að eyðileggja samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar.