158. löggjafarþing — 20. fundur,  20. okt. 2026.

aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.

233. mál
[16:06]
Horfa

Ólafur Adolfsson (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Þetta eru ákaflega áhugaverðar umræður. Ég vil þakka hv. þm. Ingibjörgu Davíðsdóttur, sessunaut mínum í umhverfis- og samgöngunefnd, fyrir hennar framsögu og áhugaverða nálgun. Ég velti því hins vegar fyrir mér hvort við séum kannski komin á þann stað að við þurfum að horfa aðeins aftur fyrir ETS-kerfið og velta fyrir okkur þeirri stöðu sem heimurinn var í á þeim tíma þegar menn voru orðnir sannfærðir um það — og nú geta menn deilt um þær kenningar — menn voru sammála um það í rauninni að loftslagsbreytingar væru hér af mannavöldum og á þeim grundvelli væri verið að setja ákveðið regluverk í kringum það sem menn töldu þá vera drifkraft þessara breytinga sem voru þá í rauninni þessi loftslagsgös sem undir voru, þar á meðal kolefni.

Ég velti því fyrir mér, ef maður hlustar á ræðu hv. þingmanns: Sér ekki þingmaðurinn það örugglega þeim augum að það sé voðalega erfitt að horfa upp á ETS-kerfið eitt og sér, að það kerfi eigi í rauninni að ná að leiðrétta þennan mun sem til staðar er, þegar það er augljóslega til þess fallið að veikja samkeppnishæfni Evrópu, að ef við horfum á heiminn allan sé mögulega skynsamlegra að reyna að ná einhvers konar samkomulagi almennt í heiminum um hvernig við viljum búa að þeirri umgjörð sem snýr að t.d. iðnaði sem mengar mikið, hvort hv. þingmaður sé ekki sammála mér í því að það hafi þá verið kannski skynsamleg lausn að horfa til þess að hafa heiminn allan undir? Síðan vil ég líka nefna hvort það væri ekki skynsamlegt að hafa einhvers konar hvata í kerfinu þannig að það væru ríkari kröfur á fyrirtækin (Forseti hringir.) um að reyna að gera breytingar á sinni framleiðslu og skapa nýjungar til að draga úr mengun.