158. löggjafarþing — 20. fundur,  20. okt. 2026.

aðlögunarkerfi landamæra vegna kolefnis.

233. mál
[16:09]
Horfa

Ingibjörg Davíðsdóttir (M) (andsvar):

Herra forseti. Ég biðst velvirðingar á því að hafa ekki ávarpað hæstv. ráðherra rétt hér áðan. Ég þakka hv. þm. Ólafi Adolfssyni fyrir andsvarið. Mér fannst spurningin góð, hún snýr í raun að því hvort ekki hefði verið skynsamlegra að hafa heiminn allan undir. Jú, sannarlega hefði verið skynsamlegra, finnst mér, að hafa heiminn allan undir. Þess vegna, af því ég þekki Alþjóðaviðskiptastofnunina svolítið vel, spurði ég áðan hvort þetta mál hefði verið rætt á vettvangi hennar. Þó að sú stofnun og aðildarríki hennar séu ekki hrifin af viðskiptahindrunum þá þætti mér miklu eðlilegra ef hægt hefði verið að gera einhvern samning á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar. Það eru ekki öll ríki í heiminum sem eiga aðild að henni en flest þeirra. Það væri miklu eðlilegra að gera svona ETS-samninga á vettvangi hennar, þar sem allur heimurinn er undir, í stað þess að vera með Evrópu einhvern veginn sér á báti. Mér hefði þótt það miklu eðlilegra þannig að ég þakka hv. þingmanni fyrir spurninguna. Ég hvet til þess að þetta verði skoðað á vettvangi þeirrar stofnunar. Ég heyrði hvað ráðherra sagði varðandi Rússland og kærurnar á vettvangi Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar, en þetta er annar hlutur.