158. löggjafarþing — 21. fundur,  21. okt. 2026.

Störf þingsins.

[13:35]
Horfa

Jón Pétur Zimsen (S):

Frú forseti. Eftir tíu ára leynd fá skólar og minni sveitarfélög loks aðgang að eigin PISA-niðurstöðum. En höfum það í huga að niðurstöðurnar geta gefið ágætis vísbendingar um stöðu þeirra mikilvægu þátta sem PISA mælir og að niðurstöður fámennari skóla eru háðar meiri tölfræðilegri óvissu en þeirra fjölmennari.

Virðulegi forseti. Í skýrslu OECD um PISA frá 2022 segir, með leyfi forseta: „Þar sem PISA-rannsóknin nær til alls þýðisins (allra nemenda) er hægt að fylgjast með niðurstöðum einstakra skóla yfir tíma.“ Allir nemendur taka prófið á Íslandi sökum smæðar en 42 nemenda úrtök eru í flestum öðrum ríkjum. Vegna þess að allir nemendur taka hér prófið, allt þýðið er undir, er hægt að fylgjast með niðurstöðum einstakra skóla yfir tíma á Íslandi eins og OECD segir. Önnur ríki hafa samt sem áður árum saman veitt sínum skólum aðgang að þessum niðurstöðum og sýnt þakklæti sitt þannig vegna þess tíma og þeirrar vinnu sem skólar leggja á sig til að taka prófið og til að auka tilgang prófsins fyrir bæði nemendur og foreldra en oft hefur verið kvartað undan því að nemendur finni ekki tilgang með því að taka prófið. Einnig geta skólar í þessum ríkjum nýtt sér niðurstöðurnar til umbóta. En kálið er ekki sopið þótt í ausuna sé komið. Síðast, árið 2015, þegar skólar gátu sótt sér niðurstöðurnar, það var boðið upp á það eins og er gert í dag — og ber að þakka hæstv. mennta- og barnamálaráðherra fyrir það — sóttu fæstir skólastjórnendur niðurstöðurnar og kusu að lifa í myrkri, eins einkennilegt og það er, og það má ekki gerast aftur. Vonandi munu foreldrar hvetja stjórnendur sinna skóla til að sækja og nýta sér upplýsingarnar þar sem leyndinni hefur verið aflétt. Allar upplýsingar um árangur í skólastarfi eru mikilvægar og okkur ber að nýta þær í þágu barna. Það á ekki að fela veikleika, alls ekki. Það á að vinna með þá og betrumbæta. Leynd á ekki að bitna á börnum.