Störf þingsins.
Virðulegur forseti. Íslenska ríkið þarf að skila greinargerð í málaferlum Eftirlitsstofnunar EFTA fyrir EFTA-dómstólnum núna 30. nóvember. Utanríkisráðherra hefur sagt að hún ætli að hafa um þessa málsvörn mikið samráð, mikið og þétt samráð við utanríkismálanefnd. Þess vegna kom mér það mjög á óvart að lesa um það í Morgunblaðinu um helgina að hæstv. utanríkisráðherra hefði ekki kynnt sér þær málsvarnir sem íslenska ríkið hefur haft uppi á undanförnum árum í þessu mikla máli og að hún ætti eftir að rifja upp að hvaða leyti þessar málsvarnir gætu komið til greina í málaferlunum sem í hönd fara. Mér brá við að lesa þetta.
Hæstv. forsætisráðherra fullyrti síðan degi síðar, eða hér í óundirbúnum fyrirspurnum á mánudaginn, að undirbúningur málsvarnar væri löngu hafinn í utanríkisráðuneytinu. Þar færi fram mikið og djúpt starf inni í ráðuneytinu til að undirbyggja þessa málsvörn. Utanríkismálanefnd hefur ekki fundað í þessari viku, það er boðað fundarfall í þessari viku, og nefndin mun ekki funda í næstu viku þannig að þingmenn hafa engin tök á að kynna sér það og fá upplýsingar um það hvernig þessari málsvörn er háttað. Mér finnst blasa við að þegar hæstv. utanríkisráðherra hefur lagt fram frumvarp til laga sem segir það beinlínis að Ísland eigi sér engar málsbætur í þessu máli, að þá sé utanríkisráðherra ekki hæfur til að fara fyrir þessari málsvörn.
Þegar svo við bætist hér í umræðu um bókun 35 sem var til umræðu í síðustu viku, þegar þingmaður Samfylkingarinnar kemur hér í þennan ræðustól og segir að það mætti vel tapa þessu máli. Það mætti vel tapa þessu máli fyrir EFTA-dómstólnum, það mætti vel tapa því, þá fer auðvitað um mig hrollur. Ég geri athugasemdir við það, virðulegur forseti, að utanríkismálanefnd sé ekki upplýst hér um þessar málsvarnir, það sé boðað fundarfall hér og nefndin muni ekki funda hér í tvær vikur á þessari ögurstundu þegar greinargerð þarf að skila núna 30. nóvember. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)