158. löggjafarþing — 21. fundur,  21. okt. 2026.

Störf þingsins.

[13:54]
Horfa

Ingvar Þóroddsson (V):

Frú forseti. Í umræðu um landbúnað finnst mér neytendum og framleiðendum því miður of oft stillt upp sem andstæðum hópum með ósamrýmanlega hagsmuni. Það er einfaldlega ekki staðan. Hagsmunir þeirra fara oftar en ekki saman. Í síðustu viku sótti ég vinnustofu um vernduð afurðarheiti á vegum verkefnisins GIFT í samstarfi við Samtök fyrirtækja í landbúnaði og Samtök iðnaðarins. Þar var m.a. afar áhugavert erindi frá Donegal á Írlandi. Donegal Tweed er eftirsóttur ullarvefnaður en stórfyrirtæki hafa verið að selja fatnað undir því heiti þótt efnið sé framleitt allt annars staðar. Á því tapar neytandinn sem fær ekki það sem hann telur sig vera að kaupa og framleiðendurnir í Donegal sem hafa byggt upp orðspor vörunnar. Þess vegna vinna framleiðendurnir í Donegal nú að því að fá Donegal Tweed skráð sem verndað afurðarheiti.

Frú forseti. Upprunaverndar- og gæðakerfið felur í sér fjölmörg tækifæri fyrir íslenska framleiðslu. Íslenskt lambakjöt er enn eina íslenska afurðin sem hefur fengið slíka vernd innan Evrópusambandsins. Maður getur varla farið í evrópska matvörubúð án þess að sjá þar jafnvel heilu rekkana með skyri og sumt af því er jafnvel markaðssett með vísun til Íslands þótt ekki sé dropi af íslenskri mjólk í vörunni. Eigum við ekki að vera stórhuga og nýta þann áhuga sem er á íslenskum afurðum? Á vorþingi samþykktum við lög um Stofnun atvinnuveganna sem færa skráningu verndaðra afurðarheita til Hugverkastofunnar. Það var gott skref en það eitt dugar ekki. Við þurfum að halda áfram að kynna kerfið, aðstoða framleiðendur við að sækja um vernd og tryggja að henni sé fylgt eftir. Þar geta löggjafinn og stjórnvöld lagt sitt af mörkum. Íslenskar afurðir eru á heimsmælikvarða, hvort sem það er lambakjöt, mjólkurafurðir, íslenska lopapeysan eða harðfiskur. Nýtum þessi tækifæri til að skapa verðmæti hér heima. Neytendur eiga að geta treyst því sem stendur á umbúðunum og framleiðendurnir eiga að njóta þess orðspors sem þeir hafa byggt upp. Þar fara hagsmunirnir saman og þar eigum við að sækja fram.