158. löggjafarþing — 21. fundur,  21. okt. 2026.

rannsókn á störfum réttarvörslu- og eftirlitsaðila í kjölfar fjármálahrunsins.

219. mál
[15:40]
Horfa

Flm. (Guðrún Hafsteinsdóttir) (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Við skulum ekki persónugera þetta, segir hv. þingmaður. Það hef ég ekki reynt að gera hér, (Gripið fram í.) ég er með orðið. Það hef ég ekki reynt að gera. Ég hef reynt að komast hjá því í mínum ræðum og mínum málflutningi hér í dag að persónugera þetta mál. Ég hef talað hér sem fyrrverandi dómsmálaráðherra sem veit að öflug löggæsla og faglegt ákæruvald eru grundvallarþættir í öryggi hvers samfélags.

Hér eru mér líka gerðar upp skoðanir: að ég finni meira til með bankamönnum heldur en öðru fólki. Þessi málflutningur er fyrir neðan allt velsæmi. Við erum hér og ég fór með það í minni fyrri ræðu — ég ætla að lesa það aftur. Hér gefst nefnilega tækifæri, (Forseti hringir.) og ég óska þess að þingheimur grípi það, til að leggja sameiginlegan grunn að umbótum og styrkja þær stofnanir sem eru í okkar samfélagi okkur öllum til góða. (Forseti hringir.) Og ég óska hins sama af þingmönnum allra flokka. Við þurfum nefnilega ekki að hafa sömu skoðanir á (Forseti hringir.) öllum atburðum sem áttu sér stað eftir hrun til að vera sammála um spurninguna um mannréttindi og beitingu ríkisvalds. Og ég ætla að minna hv. þingmann (Forseti hringir.) á rannsóknarskýrslu Alþingis sem var framkvæmd hér og var gríðarlega umfangsmikil.